Fara í efni
Umræðan

Hreyfiverkefni skilar mælanlegum árangri

Sjúkraþjálfararnir Kristveig Atladóttir og Jana Björg Róbertsdóttir eru meðal þeirra sem koma að verkefninu Hreyfum okkur á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Mynd: sak.is.

Í septembermánuði síðastliðnum hófst nýtt verkefni sjúkraþjálfara á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) sem miðar að því að hvetja sjúklinga til aukinnar hreyfingar meðan á innlögn stendur. Árangurinn af verkefninu, sem kallast Hreyfum okkur, hefur verið góður og ný könnun sýnir jákvæða þróun í átt að meiri virkni og sjálfstæði sjúklinga.

  • Fjallað var ítarlega um verkefnið Hreyfum okkur hér á akureyri.net í september sl. þegar verkefnið hóf göngu sína:

„Hreyfing getur skipt sköpum í bataferli“

Í frétt á vefsíðu SAk kemur fram að sem dæmi klæðist fleiri sjúklingar nú eigin fötum yfir daginn og notkun á hreyfihornum deildanna hefur aukist. „Þetta eru mjög hvetjandi niðurstöður sem sýna okkur að einfaldar aðgerðir og hvatning getur haft raunveruleg áhrif,“ segir Ragnhildur Jónsdóttir, yfirsjúkraþjálfari á SAk, í fréttinni.

Hreyfingin sameiginlegt verkefni allra

Næstu skref í verkefninu snúast fyrst og fremst að því að virkja fleiri fagstéttir, fylgjast með þróuninni og fjölga áminningum með sýnilegum hætti bæði fyrir starfsfólk, sem og sjúklinga og aðstandendur þeirra. „Hreyfing á meðan á innlögn stendur er sameiginlegt verkefni okkar allra,“  segir Ragnhildur og bætir við að með auknum sýnileika og einföldum verkfærum sé hægt að styðja enn frekar við bata, líðan og sjálfstæði sjúklinga.

Hljómburður í Matthíasarkirkju

Gísli Sigurgeirsson skrifar
10. mars 2026 | kl. 18:00

Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi

Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar
09. mars 2026 | kl. 15:45

Hvernig fjölga Akureyringar sér?

Þóroddur Bjarnason skrifar
08. mars 2026 | kl. 11:00

Hvað felst í því að halda áfram aðildarviðræðum?

Erna Bjarnadóttir skrifar
06. mars 2026 | kl. 09:30

„Þetta er árásarstríð gegn smáríki“

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
06. mars 2026 | kl. 09:20

Bæjarstjórnar-klúður í húsnæðismálum

Benedikt Sigurðarson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30