Fara í efni
Umræðan

Starf forstjóra SAk auglýst til umsóknar

Mynd: Þorgeir Baldursson

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir í dag embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) laust til umsóknar. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. júní næstkomandi. Umsóknarfrestur er til 23. mars.

Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk undanfarin ár, óskaði eftir því fyrr í mánuðinum að láta af störfum eftir að heilbrigðisráherra ákvað að auglýsa starfið. Skipunartími Hildigunnar átti að renna út 31. ágúst.

Í auglýsingu ráðuneytisins í dag segir:

„Sjúkrahúsið á Akureyri starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem veitir sérfræðiþjónustu í helstu greinum læknisfræði og hjúkrunarfræði sem og almenna sjúkrahúsþjónustu í sínu umdæmi,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. „Þá annast sjúkrahúsið starfsnám í heilbrigðisvísindagreinum og starfar í nánum tengslum við skóla á sviði menntunar heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Sjúkrahúsið á Akureyri er annað stærsta sjúkrahús landsins og lögum samkvæmt varasjúkrahús Landspítala. Að jafnaði eru tæplega 700 manns starfandi á SAk.“

Nánari upplýsingar

Öryggi í fyrirrúmi - sameinumst öll um nýja Slökkvistöð á Akureyri

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
15. apríl 2026 | kl. 17:00

Er Loftbrúin næst?

Sverre Jakobsson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 16:30

Gleymda forvörnin

Stefán Oddur Hrafnsson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 12:00

Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum!

María Pálsdóttir skrifar
15. apríl 2026 | kl. 11:11

Siglingahús Nökkva – klárum verkefnið!

Tryggvi J. Heimisson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 09:30

Gamall maður fer í framboð

Ragnar Sverrisson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 08:45