Fara í efni
Umræðan

Sjúkrahúsið: Breytt útlit nýbyggingar

Nýr Landspítali ohf. hefur óskað eftir tilboði í verk vegna stækkunar Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) til suðurs, þar sem stærstu verkliðir eru gröftur á jarðefnum og malbikun. Það var þó ekki útboðið sjálft sem vakti mesta athygli þess sem þetta skrifar heldur breytt útlit fyrirhugaðrar byggingar frá fyrri myndum úr kynningargögnum.

Í hönnunarferlinu hefur þakið tekið breytingum og einnig skipulag geðdeildarinnar, skv. upplýsingum frá Nýjum Landspítala ohf. sem sér um verkefnið. Endanleg útfærsla klæðningar er sögð enn á teikniborðinu og reikna megi með að hún taki einhverjum breytingum á þeim tíma sem eftir er af hönnun nýbyggingarinnar.

Í nýju byggingunni verða legudeildir skurðlækninga, lyflækninga og geðlækninga. Auk þess verða í húsinu dag- og göngudeildir geðdeildar.

EFRI MYND: Nýjasta útfærsla fyrirhugaðra bygginga sunnan við núverandi húsakost Sjúkrahússins á Akureyri.

NEÐRI MYND: Hugmyndir að nýbyggingunum eins og þær hafa verið kynntar þar til í þessum mánuði.

  • Áhugasömum verktökum skal bent á að hér eru allar upplýsingar um verkið sem nú var boðið út: utbodsvefur.is

Sumarið sem kom á óvart

Kristín Helga Schiöth skrifar
10. maí 2026 | kl. 17:30

Mannréttindi á okkar dögum

Sigrún Steinarsdóttir skrifar
10. maí 2026 | kl. 11:00

Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið

Óðinn Svan Óðinsson skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Hvert stefnir menningin?

Elsa María Guðmundsdóttir skrifar
09. maí 2026 | kl. 10:30

Hver er að blekkja hvern, Magnús?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
09. maí 2026 | kl. 06:00

Virkar samgöngur eða virka samgöngur?

Ingimar Eydal skrifar
08. maí 2026 | kl. 16:30