Fara í efni
Umræðan

Haustfrí hafið í skólum á Akureyri

Mynd: SNÆ

Haustfrí er brostið á í öllum grunn- og framhaldsskólum Akureyrar. Haustfríið hófst að loknum skóladegi í dag og stendur það fram á miðvikudag.

Búast má við því að margar fjölskyldur noti tækifærið og bregði sér út fyrir bæinn næstu fjóra daga. Fjölskyldufólk sem verður í bænum í haustfríinu getur hinsvegar fundið sér ýmislegt til dundurs um helgina.

  • Mæðgur geta til dæmis mætt á skemmtimót Píludeilar Þórs í kvöld en mótið er haldið til styrktar Krabbameinsfélags Akureyrar.
  • Í Hofi opnar sýning á verkum listakonunnar Rebekku Kühnis. Sýningin nefnist Hverfult en þar sýnir Rebekka málverk af íslenskri náttúr auk nokkurra teikninga frá fyrri árum.
  • Þá eru enn lausir nokkrir miðar á sýningu kvöldsins á Litlu Hryllingsbúðinni í Samkomuhúsinu og eins er hægt að skella sér í bíó um helgina á glænýja íslenska kvikmynd, Topp 10 möst.
  • Í Freyvangi verður svo bingó á sunnudaginn kl. 14. Klukkan 11 sama dag er krakkakirkja í Glerárkirkju og kl. 17 verður bleik messa í Akureyrarkirkju þar sem tónlistarkonan Eva Cassidy verður heiðruð. 

Á heimasíðu Akureyrarbæjar eru einnig birtar alls kyns hugmyndir fyrir fjölskylduna í haustfríinu: Haustfrí á Akureyri

Þá má finna ýmsar fjölskylduvænar hugmyndir inn á heimasíðunni Upplifðu Norðurland: 

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15