Fara í efni
Umræðan

Handbolti: KA tapaði gegn Stjörnunni

Dagur Gautason skoraði 8 mörk í kvöld, þar af 6 í seinni hálfleik, en það dugði ekki til gegn Stjörnunni. Mynd: Ármann Hinrik.

KA tapaði nokkuð óvænt gegn Stjörnunni, 35:33, í viðureign liðanna í 6. umferð efstu deildar karla, Olís-deildinni, í handknattleik í kvöld. Fyrir leikinn hafði KA unnið 4 af 5 fyrstu leikjunum en Stjarnan hefur verið að ströggla og aðeins unnið einn leik. Baráttuglaðir heimamenn höfðu hins vegar tögl og hagldir í leiknum, náðu forystunni snemma og létu hana aldrei af hendi.

Framan af leik var KA reyndar skrefi á undan en það breyttist eftir um 8 mínútna leik. Þá kom Dagur Árni Heimisson KA yfir í 8:7 með sínu fjórða marki en lenti illa á gólfinu og þurfti að fara af velli um stund. Á meðan hans naut ekki við gekk lítið upp í sóknarleik KA og Stjarnan sigldi framúr. Fimmta mark Dags Árna kom á 21. mínútu en þá voru heimamenn komnir með fjögurra marka forskot. Og ekki hjálpaði að markverðir KA vörðu aðeins eitt skot fyrstu 20 mínúturnar.

Afleit byrjun KA í seinni hálfleik

Stjarnan leiddi í leikhléi 17:14 og byrjaði seinni hálfleikinn á að skora fimm fyrstu mörkin. 22:14 forysta heimamanna reyndist of stór biti fyrir KA-menn að kyngja og þótt markvarslan væri komin í gott lag gekk illa að saxa á forskotið að einhverju ráði. Það var ekki fyrr en um 5 mínútur voru til leiksloka að vonarneisti kviknaði, eftir að Dagur Gautason minnkaði muninn í 31:29 úr hraðaupphlaupi. Stjörnumenn hleyptu KA-mönnum hins vegar ekki nær og héldu 2-3 marka forskoti allt til leiksloka.

Þrátt fyrir byltuna í fyrri hálfleik var Dagur Árni markahæstur KA-manna með 11 mörk og Dagur Gautason hrökk í gang í seinni hálfleik eftir að hafa látið Sigurð Dan Óskarsson í Stjörnumarkinu verja frá sér nokkrum sinnum framan af leiknum. Þá er Bjarni Ófeigur Valdimarsson snúinn aftur inn á völlinn, eftir að hafa meiðst á auga gegn Val seinnipartinn í september. Varnarleikurinn hefur hins vegar oftast verið betri og Stjarnan skoraði of mikið af auðveldum mörkum.

Næsti leikur KA er heimaleikur gegn Aftureldingu næstkomandi fimmtudagskvöld en Afturelding komst upp fyrir KA í stigatöflunni með sigri í gær.

Mörk KA: Dagur Árni Heimisson 11 (2 víti), Dagur Gautason 8, Jens Bragi Bergþórsson 4, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 3, Morten Linder 3,  Andri Freyr Friðriksson 2, Arnór Ísak Haddsson 1,  Einar Birgir Stefánsson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 14, Bruno Bernat 1.

Mörk Stjörnunnar: Ísak Logi Einarsson 11, Bjarki Jóhannsson 8, Tandri Már Konráðsson 6 (6 víti), Gauti Gunnarsson 4, Tóki Friðriksson 3, Jóel Bernburg 1, Jóhannes Bjorgvin 1, Matthías Dagur Þorsteinsson 1.

Varin skot: Sigurður Dan Óskarsson 14.

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15