Fara í efni
Umræðan

KA og Þór unnu – en annað liðið mun falla

Christian „Greko“ Jakobsen fagnar marki sínu eftir hálftíma leik í dag; markinu sem tryggði Þórsurum þrjú lífsnauðsynleg stig í botnbaráttu Bestu deildarinnar. Ari i Haraldstovu, markvörður ÍBV, er að vonum vonsvikinn en ekki fer á milli mála með hvoru liðinu boltastrákurinn heldur! Mynd: Skapti Hallgrímsson

KA vann öruggan 3:0 sigur á Stjörnunni og Þór vann 1:0 baráttusigur á ÍBV í fallbaráttuleikjum dagsins í efstu deild karla í knattspyrnu. Úrslitakeppni neðri hluta deildarinnar stendur nú sem hæst og eftir leiki dagsins er ljóst að ÍBV er fallið niður í Lengjudeildina og Valur, Stjarnan og FH eru búin að bjarga sér. 

  • KA sótti Stjörnuna heim í Garðabæ og eftir tíðindalitlar upphafsmínútur skoraði Hallgrímur Mar Steingrímsson úr vítaspyrnu eftir liðlega hálftíma leik og kom KA yfir. Adam Ægir Pálsson bætti við marki fyrir leikhlé og KA-menn réðu ferðinni í seinni hálfleik og bættu þá við einu marki. Það gerði Valdimar Logi Sævarsson og innsiglaði þar afar öruggan sigur KA á andlausu Stjörnuliði.
  • Það var allt undir í viðureign Þórs og ÍBV og bæði lið þurftu sigur til að halda sér á lífi í fallbaráttunni. Hörkubarátta allan tímann þar sem ekkert var gefið eftir. Christian Jakobsen tryggði Þór öll stigin með því að skora eina mark leiksins á 30. mínútu. Nokkuð furðulegt mark, þar sem markvörður Eyjamanna ætlaði að grípa boltann eftir fyrirgjöf en Jakobsen náði að lauma fætinum í knöttinn og stýra honum í netið.

Hans Viktor Guðmundsson og Jakob Snær Árnason fögnuðu öruggum sigri á Stjörnunni í Garðabæ ásamt félögum sínum í KA í dag. Mynd: Ármann Hinrik

Línurnar í fallbaráttunni hafa því skýrst talsvert. Einu liðin sem hafa að einhverju að keppa í síðustu tveimur umferðunum eru KA og Þór og ljóst er að annað þeirra mun fylgja ÍBV úr deildinni. KA stendur þar betur að vígi með 26 stig gegn 24 hjá Þór og er auk þess með mun betri markatölu. KA á eftir að leika við Val á útivelli og ÍBV á heimavelli en Þór fær Stjörnuna í heimsókn næst og endar tímabilið á útileik gegn FH.

Meira á eftir

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15