Fara í efni
Umræðan

Þór gegn ÍBV í Eyjum, KA úti gegn Stjörnunni

KA og Þór leika bæði á útivelli í kvöld. Myndin eru úr viðureign þessara liða í KA-heimilnu fyrr í haust. Hafþór Vignisson fær óblíðar móttökur hjá Einari Birgi Stefánssyni í vörn KA á meðan KA-mennirnir Daníel Matthíasson og Bjarni Ófeigur Valdimarsson fylgjast með, eins og Þórsarinn Þórður Tandri Ágústsson. Myndir: Ármann Hinrik.

Handbolti er íþrótt dagsins hjá karlaliðum Akureyrar, sem bæði eiga útileik í kvöld. Þórsarar eru farnir til Vestmannaeyja í tveggja leikja ferð og KA fer í Garðabæinn. 

Þór sækir ÍBV heim í Olísdeild karla í kvöld og hefst leikurinn kl. 18. Bæði liðin hafa unnið tvo leiki og tapað þremur. ÍBV er í sjötta sæti deildarinnar og Þór í því sjöunda með nokkurra marka óhagstæðari markamun. Bæði liðin töpuðu í síðustu umferð, Þór á útivelli gegn Val og ÍBV á útivelli gegn KA. Leikurinn í kvöld er fyrri leikur Þórs í heimsókn liðsins til Eyja því á morgun spila Þórsarar gegn ÍBV 2 í bikarkeppninni.

KA hefur byrjað tímabilið vel og var í öðru sæti deildarinnar með átta stig að loknum fimm umferðum. KA sækir Stjörnuna heim í kvöld, en Stjarnan er í 10. sæti deildarinnar með þrjú stig. Stjarnan tapaði á útivelli fyrir HK í síðustu umferð, en KA vann ÍBV á heimavelli. Í millitíðinni tapaði KA reyndar fyrir Víkingi á útivelli í bikarkeppninni og Stjarnan fyrir Haukum.

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 6. umferð
    Íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum kl. 18
    ÍBV - Þór

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 6. umferð
    Hekluhöllin í Garðabæ kl. 18:30
    Stjarnan - KA

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15