Fara í efni
Umræðan

KA féll úr leik í bikarnum gegn Víkingi

Bjarni Ófeigur Valdimarsson er fjarri góðu gamni þessar vikurnar vegna áverka á auga sem hann hlaut í viðureign KA og Vals nýverið. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

KA féll úr leik í bikarkeppni karla í handknattleik, Powerade-bikarnum, eftir 35:28 tap gegn Víkingi á útivelli í gærkvöld. Víkingar voru yfir nánast allan leikinn en KA þó aldrei langt undan. Á síðustu 10 mínútunum slitu Víkingar sig hins vegar frá KA og kláruðu leikinn með sannfærandi sigri.

Jafnt var á flestum tölum framan af leiknum en Víkingar náðu síðan frumkvæðinu og leiddu með 2-3 mörkum fram að hléi. Staðan var 20:17 þeim í vil þegar fyrri hálfleik lauk og KA gerði síðan fyrsta markið í seinni hálfleik. Gestirnir náðu samt aldrei að komast almennilega inn í leikinn, Víkingar áttu alltaf svör og hleyptu KA-mönnum aldrei of nálægt. Í stöðunni 28:26 gáfu Víkingar síðan í og unnu að lokum 7 marka sigur, 35:28.

Víkingur er því kominn áfram í 8 liða úrslitin en KA er úr leik. Dagur Árni Heimisson var sem fyrr atkvæðamestur í sóknarleik KA og gerði 13 mörk. Andri Freyr Friðriksson var með 5 en aðrir náðu sér ekki á strik í sókninni. Vörnin var heldur ekki upp á sitt besta og markvarslan hefur oftast verið betri.

Bjarni Ófeigur meiddur á auga

Bjarni Ófeigur Valdimarsson var fjarri góðu gamni annan leikinn í röð, eftir að hafa meiðst í viðureigninni gegn Valsmönnum þann 25. september. Bjarni Ófeigur fékk þá högg á augað og varð fyrir áverka á augnbotni. Í samtali við Handkastið kemur fram að honum hefur verið gert að halda sig frá allri hreyfingu næstu vikurnar á meðan hann er að jafna sig. „Málið er að ég má ekki fá púlsinn upp því þá getur verið hætta á blæðingu inn í auganu út af þrýstingi og gæti þá misst sjón varanlega,“ sagði Bjarni í viðtalinu við Handkastið. Ljóst er að hann missir af næstu 2-3 leikjum liðsins í það minnsta.

Mörk KA: Dagur Árni Heimisson 13, Andri Freyr Friðriksson 5, Arnór Ísak Haddsson 2, Dagur Gautason 2, Jens Bragi Bergþórsson 2, Morten Linder 2, Daði Jónsson 1, Einar Birgir Stefánsson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 9, Bruno Bernat 1.

Mörk Víkings: Sigurður Páll Matthíasson 8, Jón Karl Einarsson 6, Elvar Otri Hjálmarsson 4, Kristján Helgi Tómasson 4, Ásgeir Snær Vignisson 3, Halldór Ingi Óskarsson 3, Þorgeir Bjarki Davíðsson 3,  Ísak Óli Eggertsson 2, Kristófer Snær Þorgeirsson 1, Rytis Kazakevicius 1.

Varin skot: Rökkvi Pacheco Steinunnarson 12.

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15