Fara í efni
Umræðan

KA/Þór enn án stiga eftir fimm umferðir

Lydia Gunnþórsdóttir var markahæst gegn Gróttu með 8 mörk, þar af 4 úr víti. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.

KA/Þór tapaði sínum fimmta leik í jafnmörgum umferðum í gærkvöld þegar liðið sótti nýliða Gróttu heim í efstu deild kvenna í handknattleik, Olís-deildinni. Eftir góða byrjun KA/Þórs í leiknum fjaraði undan hjá liðinu, Grótta náði forskoti sem hélst allt til leiksloka og lokatölur urðu 30:25. Eftir tap í þessum mikilvæga fallbaráttuslag eru norðanstúlkur ennþá stigalausar á botni deildarinnar.

Eins og áður sagði byrjaði KA/Þór leikinn vel og eftir 10 mínútur var staðan 5:1 þeim í vil. Þá fór allt í baklás og Grótta skoraði 5 mörk í röð á 5 mínútum og komst yfir, 6:5. Eftir það var jafnræði með liðunum þangað til Grótta breytti stöðunni úr 10:10 í 13:10 undir lok hálfleiksins. Lydía Gunnþórsdóttir skoraði síðasta mark hálfleiksins og minnkaði muninn í 13:11 áður en flautað var til leikhlés.

Grótta hélt forystunni til leiksloka

Fyrsta mark seinni hálfleiks kom frá KA/Þór og munurinn því aðeins eitt mark. En nær komst KA/Þór ekki. Grótta náði forskoti sem hélst í 2-4 mörkum og þó að KA/Þór næði einu sinni að minnka muninn í eitt mark um miðjan hálfleikinn vantaði allltaf herslumuninn. Heimastúlkur  voru með leikinn í höndum sér og með því að skora þrjú síðustu mörk leiksins unnu þær 5 marka sigur, 30:25.

Leikur KA/Þórs var ekki nógu sannfærandi í gær, sóknarleikurinn var bitlaus lengst af og margir boltar töpuðust í sókninni. Grótta skoraði mörg auðveld mörk eftir hraða miðju og vörn KA/Þórs gekk lítið að ráða við það. Gróttuvörnin var með 24 lögleg stopp á meðan KA/Þór var aðeins með 9. Markverðir KA/Þórs náðu sér heldur ekki á strik, utan fyrstu 10 mínútnanna, á meðan markvörður heimaliðsins náði að klukka marga bolta. 

Nú þarf að fara að safna stigum

Þrátt fyrir að verma botnsætið er ennþá stutt á milli neðstu liðanna í deildinni og nægur tími til að laga stöðuna. Næsti leikur KA/Þórs er annar mikilvægur botnbaráttuslagur en næstkomandi laugardag kemur Stjarnan í heimsókn í KA-heimilið.

Mörk KA/Þórs: Lydía Gunnþórsdóttir 8 (4 víti), Sólveig Lára Kristjánsdóttir 5, Hafrún Linda Guðmundsdóttir 4, Agatha Kjærbæk Djurhuus 3, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 2, Lenka Ratvajská 2, Joan Rúnadóttir Johannessen 1.

Varin skot: Ástrós Bender Mikaelsdóttir 6, Ingibjörg Lovísa Hauksdóttir 0.

Mörk Gróttu: Eva Björk Davíðsdóttir 8, Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir 6, Katrín S. Scheving Thorsteinsson 6, Arnbjörg Bertha Kristjánsdóttir 3, Þóra María Sigurjónsdóttir 3, Katrín Helga Sigurbergsdóttir 2, Andrea Gunnlaugsdóttir 1, Edda Sigurðardóttir 1.

Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 12, Anna Karólína Ingadóttir 0.

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15