Fara í efni
Umræðan

Góð tíðindi

Kærleikshagkerfið sem sósíalistar boða er góð tíðindi. Það fjallar um að auka lýðræði, hlusta á vilja almennings og fara eftir honum. Styðja við þá veiku og fátæku. Lyfta samfélaginu upp frá botninum ekki smyrja öllu upp á blá toppinn sem hrynur svo yfir okkur öll.

Við viljum kerfisbreytingar og segjum hreint út að ekkert dugi nema þær. Smáplástrapólitíkin skilar engum árangri. Gott dæmi um það er hækkun barnabóta í tíð síðustu ríkistjórnar. Vissulega hækkuðu barnabætur. Það var smáplástur, Hann var svo rifin af í skyndi hinumegin í ríkisreikningum. Verðhækkanir gerðu ávinninginn að engu.

Stjórnarliðar, sérstaklega forystufólk VG hreykja sér mikið af hækkun barnabóta en forðast að segja alla söguna. Þannig er smáplástrapólitíkin fyrst og fremst áróðurstæki til að viðhalda óbreyttu ástandi.

Ekkert nema kerfisbreytingar geta komið til leiðar varanlegum ávinningi launafólks, bótaþega, einstæðra mæðra og annarra sem nýfrjáshyggjukerfið neitar um réttlátan skerf í samfélaginu.

Fyrir því vill Sósíalistaflokkurinn berjast. Það eru góð tíðindi.

Með því að breyta ríkisfjármálum, hefta græðgi fjármálakerfisins, taka upp félagslega bankastarfsemi með samfélagsbönkum og skattleggja þau ríku svo þau greiði sinn réttláta skerf skjótum við efnahagslegum stoðum undir það verkefni að byggja upp samfélag sem hefur hagsmuni almennings að kjölfestu og hafnar rörsýn á hagsmuni fjármagnseigenda, stórfyrirtækja og bankakerfis.

Við viljum gjaldfrjálst heilbrigðiskerfi sem nær til alls landsins, gjaldfrjálsar samgöngur um land allt, nýtt fiskveiðikerfi sem færir auðinn til þjóðarinnar og setur hömlur á auðræði þeirra fáu. Skilum þeirri skömm sem er fátækt barna og þeirra lægstlaunuðu. Sama á við um fátækt aldraðra og öryrkja, grimmilegar skerðingar og skattkerfi sem níðist á almenningi en eys forréttindum yfir þá ríku.

Hefjum stórátak í byggingu félagslegra íbúða.

Þetta eru lausnir ekki smáplástrar. Látum ekki skrökva því að okkur að þetta sé ekki hægt. Við lifum í einhverju auðugasta landi veraldarinnar. Jöfnuður og sanngjörn skipting er allt sem þarf.

Það eru góð tíðindi

Og núna 25 september snúum við vörn í sókn.

Sósíalistaflokkurinn þorir

Sósíalistaflokkurinn getur

Þú kjósandi góður hefur aflið til að gefa okkur. Þetta eru mikilvægustu kosningar í langan tíma; annarsvegar er hörð hægristefna með einkavæðingu og auðmannadekri og hins vegar er kærleikur félagshyggjunnar og loksins raunveruleg andstaða við sérhagsmunastefnu stjórnvalda. Kjörklefinn stendur þér opinn til að til þess að velja á milli.

Með því að setja x við j á kjördag hefjum við löngu tímabæra baráttu og hefjum nýtt tímabil andstöðu við auðvaldið og uppbyggingu félagslegra gilda

Kjósum með hjartanu. Skilum Rauðu – X-J á kjördag.

Haraldur Ingi Haraldsson er oddvita sósíalista í Norðausturkjördæmi.

Jaðarsetning eldri borgara?

Benedikt Sigurðarson skrifar
20. mars 2026 | kl. 19:00

Spörum okkur ekki til óbóta

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Sverre Jakobsson skrifa
19. mars 2026 | kl. 21:30

Mannhvelið: þar sem drengir verða karlmenn

Skúli Bragi Geirdal skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:30

Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands?

Erna Bjarnadóttir skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:30

Vantar ríki sem geta borgað

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:00

Fyrir hvað á Akureyri að standa?

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
14. mars 2026 | kl. 18:00