Fara í efni
Pistlar

Þúsund Þórsleikir í deildakeppninni

Aron Birkir Stefánsson fyrirliði Þórs með boltann í 1000. deildaleik félagsins á Akranesi síðastliðinn sunnudag, 9. ágúst. Þetta var 190. deildaleikur Arons Birkis með Þór og hann var besti maður liðsins. Til hægri er Yann Emmanuel Affi og til vinstri Skagamaðurinn Viktor Jónsson. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar léku sannkallaðan tímamótaleik síðastliðinn sunnudag þegar þeir mættu Skagamönnum á Akranesvelli í átjándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta. 

Þetta var eitt þúsundasti leikur félagsins í deildakeppninni, allt frá því Þór lék í fyrsta skipti með sjálfstætt lið árið 1975, eftir að lið ÍBA var lagt niður og Akureyrarfélögin tvö hófu bæði keppni í gömlu 3. deildinni, sem samsvarar 2. deild í dag.

Fyrsti deildaleikur Þórs fór fram á Blönduósi 7. júní 1975 þar sem Akureyrarliðið vann nauman sigur á heimamönnum í Ungmennasambandi Austur-Húnavatnssýslu (USAH), 1-0. Óskar Gunnarsson skoraði sigurmarkið.

1975 – Óskar Gunnarsson, til hægri, gerði fyrsta mark Þórs í deildakeppninni – í fyrsta leik liðsins á Íslandsmótinu, gegn USAH á Blönduósvelli 7. júní 1975. Sigurður Lárusson, til vinstri, var í Þórsliðinu þann dag en svo skemmtilega vildi til að sonur hans, Lárus Orri, stýrði liði Akurnesinga um síðustu helgi í þúsundasta deildarleik Þórs. Lárus Orri lék bæði með Þór og þjálfaði liðið eins og faðir hans. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Óhætt er að segja að það hafi verið upphafið að ágætis sigurgöngu því á næstu 15 mánuðum vann Þórsliðið 21 af fyrstu 26 leikjum sínum í deildakeppninni og tapaði aðeins einum, 1-0 gegn ÍBV í Vestmannaeyjum í fyrstu umferð 2. deildarinnar (1. deild í dag), og hafði haustið 1976 tryggt sér sæti í efstu deild. Leikirnir níu í 3. deildinni 1975 unnust allir og sá síðasti þeirra, úrslitaleikur deildarinnar gegn KA, endaði með 4-0 sigri Þórs að viðstöddum 1.300 áhorfendum á Akureyrarvelli. Leiða má líkum að því að það sé enn í dag áhorfendamet í þriðju efstu deild hér á landi.

Sigrarnir 20 fleiri en töpin

Af þeim 1.000 leikjum sem Þór hefur nú leikið í þremur efstu deildum Íslandsmótsins hefur félagið unnið 405, gert 210 jafntefli og tapað 385 leikjum. Markatalan er 1.584 mörk skoruð og 1.574 mörk fengin á sig.

Á milli deilda skiptast leikirnir þannig að leikurinn á Akranesi á sunnudaginn var númer 336 í efstu deild en flestir leikjanna eru í 1. deild, 619, og fæstir í 2. deild, 45 talsins.

Nærri 30% allra deildaleikja Þórs! – Ármann Pétur Ævarsson, fyrir miðri mynd, er sá Þórsari sem hefur spilað flesta deildaleiki fyrir félagið – alls 294 af 1000. Hér fagnar hann sigurmarki sínu (3:2) á lokaandartökunum gegn KA í B-deild Íslandsmótsins 22. júlí 2009; í vígsluleik Þórsvallar eftir gagngerar endurbætur á svæðinu. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Ármann með í 30 prósent leikjanna

Ármann Pétur Ævarsson er sá Þórsari sem hefur leikið flesta deildaleiki fyrir félagið á þessum ríflega 50 árum en hann lék 294 leiki í tveimur efstu deildunum á árunum 2002 til 2019 og spilaði aldrei með öðru félagi. Hann hefur því tekið þátt í tæplega 30 prósent leikja Þórs. Þessir tíu eru leikjahæstir í deildaleikjum fyrir Þór en fyrirliði liðsins í dag, markvörðurinn Aron Birkir Stefánsson, komst í hóp tíu efstu fyrr á þessu tímabili og jafnaði í dag metin við Júlíus Tryggvason í 7. til 8. sætinu.

Frá vinstri: Sigurður Marinó Kristjánsson 243 leikir – Nói Björnsson 250 leikir – Jóhann Helgi Hannesson 250 leikir – Hlynur Birgisson 268 leikir.

  • 294 Ármann Pétur Ævarsson, 2002-2019
  • 268 Hlynur Birgisson, 1985-1994 og 2001-2008
  • 250 Jóhann Helgi Hannesson, 2007-2021
  • 250 Nói Björnsson, 1977-1991
  • 243 Sigurður Marinó Kristjánsson, 2007-2017 og 2019-2022
  • 218 Sveinn Elías Jónsson, 2009-2020
  • 190 Júlíus Tryggvason, 1983-1994 og 2000-2001
  • 190 Aron Birkir Stefánsson, 2016-2026
  • 187 Halldór Áskelsson, 1982-1988, 1991-1993, 1996-1998 og 2000-2001
  • 178 Árni Stefánsson, 1976-1987

Frá vinstri: Árni Stefánsson 178 leikir – Halldór Áskelsson 187 leikir – Júlíus Tryggvason 190 leikir– Aron Birkir Stefánsson 190 leikir – Sveinn Elías Jónsson 218 leikir.

KA lék þúsundasta leikinn í fyrra

KA og Þór hófu keppni á sama tíma í gömlu 3. deildinni árið 1975 en KA er samt með nokkuð forskot á Þór í leikjafjölda, spilaði sinn þúsundasta deildaleik á síðasta ári, gegn ÍBV í 18. umferð Bestu deildarinnar, og lék sinn 1.027. deildaleik gegn FH á dögunum.

Munurinn á Akureyrarfélögunum liggur að stórum hluta í því að eftir að leikjum í Bestu deildinni var fjölgað úr 22 í 27 fyrir nokkrum árum lék KA samtals 20 leikjum meira en Þór á árunum 2022 til 2025. Þá nægði Þórsurum að leika níu leiki til að vinna 3. deildina árið 1975 á meðan KA þurfti að fara í flókið umspil og spila alls 16 leiki áður en sæti í 2. deild var í höfn.

  • Nánar verður fjallað um 1.000 leikja tímamótin hjá KA á morgun.

Hinn sæti sykurhlynur

Sigurður Arnarson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hverju gefum við pláss?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
11. ágúst 2026 | kl. 06:00

Byggt á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
09. ágúst 2026 | kl. 06:00

Frelsisást og feigðarþrá

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
08. ágúst 2026 | kl. 06:00

Var 1986 besta ár sögunnar?

Orri Páll Ormarsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 08:00

Birkiættkvíslin – einkenni og þróun

Sigurður Arnarson skrifar
05. ágúst 2026 | kl. 10:00