Fara í efni
Pistlar

Afleit staða beggja Akureyrarliðanna

Akureyrarfélögin eru jöfn að stigum í tveimur neðstu sætum Bestu deildar karla, efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu, þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt fyrir lokakaflann. Þá halda þau sex efri áfram keppni um Íslandsmeistaratitilinn og hin sex mætast innbyrðis og keppast um að halda sæti í deildinni. Tvö neðstu falla að loknum fimm viðbótarleikjum.

Bæði liðin töpuðu í gærkvöldi, Þór fyrir ÍA á Akranesi og KA á heimavelli fyrir FH sem var í neðsta sætinu fyrir leikinn. KA og Þór hafa nú bæði 15 stig en FH-ingar skutust upp í 17 með sigri á Greifavellinum.

Liðin sem voru í seilingarfjarlægð frá KA og Þór fyrir gærdaginn nældu flest í stig í gær; Valur, sem hefur verið í basli, vann Breiðablik og komst upp í 5. sæti, Skagamenn fóru upp í 6. sæti og Stjarnan vann Keflavík. Þá gerði ÍBV jafntefli við Víking.

Þess verður að geta að ÍBV og FH eru aðeins tveimur stigum á undan Akureyringum en Stjarnan er nú sex stigum á undan og Keflavík, ÍA og Valur öll sjö stigum fyrir ofan KA og Þór. Öll nótt er sjálfsögðu ekki úti en blóðug botnbaráttan framundan.

Þetta eru leikirnir sem félögin eiga eftir þar til deildinni verður skipt:

19. umferð:

  • Valur - KA
  • Þór - Keflavík

20. umferð:

  • KA - KR
  • Stjarnan - Þór

21. umferð:

  • Fram - KA
  • ÍBV - Þór

22. umferð:

  • KA - Breiðablik
  • Þór - FH

 

Fjallað var ítarlega um leikina á akureyri.net í gærkvöldi. Smellið hér til að lesa:

Byggt á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
09. ágúst 2026 | kl. 06:00

Frelsisást og feigðarþrá

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
08. ágúst 2026 | kl. 06:00

Var 1986 besta ár sögunnar?

Orri Páll Ormarsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 08:00

Birkiættkvíslin – einkenni og þróun

Sigurður Arnarson skrifar
05. ágúst 2026 | kl. 10:00

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Of gamall til að greiða atkvæði

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
01. ágúst 2026 | kl. 06:00