Dýrmæt stig í boði hjá Akureyrarliðunum
Bæði Akureyrarliðin í Bestu deild karla í knattspyrnu eiga leik í dag, KA tekur á móti FH, en Þór sækir ÍA heim á Akranes. Bæði liðin eru í harðri baráttu við botn deildarinnar, bæði með 15 stig að loknum 17 umferðum og aðeins eitt lið fyrir neðan.
Baráttan í neðri hluta deildarinnar er áfram gríðarlega jöfn og spennandi. Munurinn á liðunum í 6. og 12. sæti er aðeins fimm stig. Valur og ÍA eru með 19 stig, Stjarnan í 8. sætinu með 18 stig, Þá ÍBV með 16, Akureyrarliðin með 15 stig og svo FH með 14.
Þau gerast því varla dýrmætari stigin í fótboltanum en þau sem eru í boði í leik dagsins á Akureyri. KA tekur þá á móti FH, en þessi lið eru í 10. og 12. sæti deildarinnar. FH-ingar geta með sigri komið sér af botninum og upp fyrir KA, jafnvel Þór einnig ef Þórsarar vinna ekki á Skaganum. Að sama skapi getur KA komið sér aftur fjórum stigum frá FH með sigri og jafnvel fært sig eitthvað upp töfluna ef önnur úrslit eru hagstæð.
- Besta deild karla í knattspyrnu
KA-völlur (Greifavöllurinn) kl. 18:15
KA - FH
FH hefur verið á sömu slóðum og Akureyrarliðin í neðstu sætum deildarinnar, en Hafnfirðingar hafa þó ekki tapað í síðustu sjö leikjum sínum, síðasti tapleikur þeirra var gegn ÍA í lok maí. KA vann fyrri viðureign liðanna í vor, 2-1 á útivelli.
- - -
Stigin sem eru í boði á Akranesi eru auðvitað dýrmæt einnig. Þór getur með sigri haldið í við eða komist upp fyrir KA og jafnvel ÍBV einnig ef úrslit eru hagstæð. Að sama skapi eygja Skagamenn væntanlega tækifæri til að slíta sig betur frá botnliðunum.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 18. umferð
Akranesvöllur (ELKEM-völlurinn) kl. 18
ÍA - Þór
ÍA er í 7. sæti deildarinnar með 19 stig að loknum 17 umferðum. Fyrri leik liðanna lauk með 2-1 sigri Skagamanna á Akureyri í maí.
Frelsisást og feigðarþrá
Var 1986 besta ár sögunnar?
Birkiættkvíslin – einkenni og þróun
Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi