Fara í efni
Pistlar

Handbolti heima, golf og fótbolti syðra

Handbolti, fótbolti og golf á dagskrá Akureyrskra liða í dag. Opna Norðlenska í handbolta heldur áfram, Þór/KA heldur suður og mætir Víkingi í Bestu deild kvenna í knattspyrnu og bæði lið Golfklúbbs Akureyrar í hörkubaráttu á Íslandsmóti golfklúbba, karlarnir á Strandarvelli Golfklúbbs Hellu og konurnar á Hlíðarvelli Golfklúbbs Mosfellsbæ.

Opna Norðlenska

Opna Norðlenska handboltamótið heldur áfram.

  • Opna Norðlenska í handbolta, konur
    KA-heimilið kl. 18:00
    KA/Þór – ÍR
  • Opna Norðlenska í handbolta, karlar
    KA-heimilið kl. 20:00
    Þór – ÍR

Útileikur hjá Þór/KA

Þór/KA hefur aðeins náð að hífa sig upp stigatöfluna með fjórum sigrum í síðustu sex leikjum, en liðið situr nú í 8. sæti með 15 stig eftir 14 umferðir. Þór/KA og Þróttur voru  jöfn að stigum að loknum 14 umferðum, en Þróttur vann Val fyrr í vikunni og fór í 18 stig. Þór/KA getur náð Þrótturum að nýju með sigri í kvöld. Enn er mjög lítill munur á stigafjölda liðanna í neðri hlutanum, Þróttur með 18 stig (15 leikir) Fram með 16 stig (15 leikir) í 6. sætinu, þá Þór/KA 15 stig (14 leikir), Valur í 9. sætinu með 13 stig (15 leikir) og Víkingur færðist niður í 10. sætið eftir tap fyrir Val í síðustu umferð, er þar með 11 stig (14 leikir).

Víkingur er einmitt næsti mótherji Þórs/KA og minnugar fyrri leiks liðanna sem fram fór á Akureyri í lok maí má búast við að knattspyrnukonurnar í Þór/KA leggi allt í sölurnar til að ná í þrjú stig í Fossvoginn í kvöld. Leikur Víkings og Þórs/KA átti upphaflega að vera 13. ágúst, í gær, en var seinkað um einn dag vegna Evrópuleiks á heimavelli Víkings.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 16. umferð
    Víkingsvöllur kl. 18
    Víkingur - Þór/KA

GA-liðin í hörku baráttu

Íslandsmót golfklúbba heldur áfram í dag og eru bæði lið Golfklúbbs Akureyrar í hörkubaráttu, karlarnir á Strandarvelli Golfklúbbs Hellu og konurnar á Hlíðarvelli Golfklúbbs Mosfellsbæ. Bæði Akureyrarliðin spila í 1. deild, sem er efsta deild Íslandsmótsins.

Kvennasveit GA hefur unnið báðar viðureignir sínar til þessa og mætir sveit Golfklúbbsins Keilis í síðustu viðureign í riðlinum. Sú viðureign hefst núna kl. 8. Tvö efstu lið í riðlunum tveimur fara áfram í undanúrslit.

Karlasveit GA er sem stendur í 2. sæti síns riðils, hefur unnið eina viðureign og tapað einni. Sveit GA mætir sveit GR í lokaumferð riðilsins og hefst sú viðureign kl. 8. Eins og í kvennaflokknum fara tvö lið úr hvorum riðli áfram í undanúrslit.

Allar upplýsingar um mótið má finna á golf.is.

Hinn sæti sykurhlynur

Sigurður Arnarson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hverju gefum við pláss?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
11. ágúst 2026 | kl. 06:00

Byggt á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
09. ágúst 2026 | kl. 06:00

Frelsisást og feigðarþrá

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
08. ágúst 2026 | kl. 06:00

Var 1986 besta ár sögunnar?

Orri Páll Ormarsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 08:00

Birkiættkvíslin – einkenni og þróun

Sigurður Arnarson skrifar
05. ágúst 2026 | kl. 10:00