Þórsarar sektaðir um 250 þúsund vegna blysa
Knattspyrnudeild Þórs hefur verið sektuð um 250.000 krónur vegna blysa sem stuðningsmenn liðsins kveiktu á þegar Þórsarar mættu Val í efstu deild karla í knattspyrnu í liðinni viku.
Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) kvað upp þennan úrskurð og byggir hann skýrslu eftirlitsmanns sambandsins á framangreindum kappleik. Í skýrslunni kemur fram að stuðningsmenn Þórs hafi kveikt fjórum sinnum á handblysum innan um fólk en engin gæsla hafi verið sjáanleg sem hafi tekið á þessu.
Í athugasemdum Þórs við skýrslu eftirlitsmannsins kemur fram að Þór sjái ekki um gæslu á útileikjum liðsins og geti því ekki svarað fyrir það af hverju vallargæslan hafi ekki gert athugasemd við stuðningsmannahópinn. „Einnig getum við ekki fundið í reglugerðum KSÍ neinar leiðbeiningar eða reglur um hvað stuðningsmannahópar mega bera með sér í stúku og hvað má ekki. Því óskum við einnig eftir því að fá það á hreint frá ykkur og í kjölfarið munum við ræða við okkar hóp. Við höfum þegar rætt við hópinn um að þetta verði ekki endurtekið,“ segir í athugasemd Þórs.
Í röksemdafærslu nefndarinnar er hins vegar vísað í lög og reglugerðir KSÍ þar sem fram kemur að sérhvert aðildarfélag beri ábyrgð á framkomu leikmanna, forráðamanna, félagsmanna og stuðningsmanna sinna. Aga- og úrskurðarnefndin telur að þessi framkoma stuðningsmannanna hafi verið vítaverð og hættuleg Með vísan til ákvæðis í reglugerð KSÍ ákvað nefndin að sekta knattspyrnudeild Þórs um 250.000 krónur en hámarkssekt fyrir brot af þessu tagi er 500.000 krónur.
Verk gömlu meistaranna
Birki og beit
Hús dagsins: Hafnarstræti 35
Þegar lífið hægir á manni