Fara í efni
Pistlar

Þórsarar fá Þorra að láni frá Víkingum

Þorri Ingólfsson með boltann í leiknum gegn Þór á laugardaginn. Þórsarinn er Ágúst Eðvald Hlynsson. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Knattspyrnumaðurinn Þorri Ingólfsson er genginn til liðs við Þór og mun leika með liðinu það sem eftir lifir tímabilsins í Bestu deildinni.

Þorri kemur til Þórs að láni frá Íslandsmeisturum Víkings þar sem hann er uppalinn.

Þorri er fæddur árið 2009, verður 17 ára síðar í sumar. Hann hefur leikið 16 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og gert tvö mörk. Fyrsti leikur Þorra í byrjunarliði Víkings var síðastliðinn laugardag gegn Þór á Akureyri, þar sem Þórsarar unnu 2:1. Hann er fjölhæfur leikmaður en leikur oftast á vinstri kanti.

Áhrif ísaldar á gráelrideildina

Sigurður Arnarson skrifar
22. júlí 2026 | kl. 12:30

Hafþyrnir - Hinn þyrnótti hestaljómi

Sigurður Arnarson skrifar
15. júlí 2026 | kl. 11:30

Hús dagsins: Sigtún; eldra íbúðarhús

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. júlí 2026 | kl. 09:00

Þarf sumarið að vera fullkomið?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
14. júlí 2026 | kl. 06:00

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00

Vínviður Vínlands hins góða

Sigurður Arnarson skrifar
08. júlí 2026 | kl. 10:00