Fara í efni
Pistlar

Um 80 Akureyringar fastir í Gautaborg

Strákarnir í 4. flokki Þórs eru reiðubúnir að halda heim, en hafa þurft að bíða síðan í gær og komast vonandi heim í nótt. Aðsend mynd.

Í hópi rúmlega 100 manns sem urðu strandaglópar í Gautaborg í gær eftir að Icelandair varð að aflýsa flugi eru stelpur, fararstjórar og þjálfarar í 3. flokki Þórs/KA og strákar, fararstjórar og þjálfarar í 4. flokki drengja hjá Þór, samtals um 80 manns héðan, auk stúlkna úr Stjörnunni í Garðabæ. 

Samtals eru um 80 manns frá Þór/KA og Þór sem nú bíða og vona að nýjasta flugáætlunin standist, væntanlega með vaxandi óþolinmæði. Frá Þór/KA eru 43 stelpur, sex fararstjórar og tveir þjálfarar og frá Þór eru 23 strákar, fimm fararstjórar og tveir þjálfarar. 

Akureyri.net hefur verið í sambandi við fararstjóra og þjálfara hjá Þór/KA hópnum, en eins og gefur að skilja eiga Akureyrarliðin eftir sex tíma rútuferðalag heim þegar loksins verður lent á Keflavíkurflugvelli eftir næturflug, ef allt stenst. „Okkur þykir vert að nefna að við myndum vera mjög þakklát ef Icelandair kæmi okkur fljúgandi alla leið norður eftir þessi óþægindi,“ voru skilaboðin sem komu frá fararstjórunum núna undir kvöld.

Eftir að öðru flugi Icelandair frá Gautaborg í gærkvöld var aflýst var stefnt á flug núna síðdegis, en fyrir stuttu fengu strandaglóparnir fréttir af frestun og núna síðdegis bárust hópnum þau skilaboð að Icelandair væri að kalla út áhöfn sem á að fara frá Íslandi kl. 19:30 þannig að flogið verður frá Gautaborg kl. 1:20 í nótt ef allt gengur að óskum.

Upphaflega fékk hver og ein í hópnum sem samsvarar um 1.300 íslenskum krónum til ráðstöfunar, en síðan hækkað í um 6.500 krónur. Aðsend mynd.

Atburðarásin í stórum dráttum, eins og fararstjórar hjá Þór/KA lýsa henni:

  • Upphaflega var flug áætlað heim kl. 18:45 í gær, sunnudaginn 19. Júlí.
  • Fljótlega eftir innritun var fluginu frestað í tvígang, seinkanir, en síðan aflýst seinna um kvöldið.
  • Einu upplýsingarnar sem hópurinn fékk frá Icelandair og flugvallarstarfsfólki var að hópurinn ætti sjálfur að útvega sér hótel.
  • Upplýst að flogið yrði kl. 21 kvöldið eftir, þ.e. í kvöld.
  • Verdi feðaskrifstofan greip boltann og aðstoðaði hópinn við að finna hótel. Það tókst og gisti allur hópurinn saman á hóteli í borginni, mikill léttir fyrir alla, að sögn.
  • Um kl. 00:30 komu upplýsingar í tölvupósti frá Icelandair um að flugið yrði í dag kl. 16:05.
  • Um kl. 13:30 í dag, á mánudegi, þegar hópurinn var að koma út úr rútunni við flugvöllinn, kom póstur frá Icelandair um að fluginu hefði verið seinkað til kl. 20.
  • Hópurinn þurfti að innrita farangurinn og finna sér eitthvað við að vera í nágrenni flugvallarins.
  • Við mætingu aftur á flugvöllinn og hópurinn kominn í öryggisleit bárust fréttir af seinkun um 1,5 klst. Stuttu seinna kom svo póstur um að fluginu hefði verið aflýst, aftur.
  • Óstaðfestar fyrstu fréttir voru að flug fengist eldsnemma morguninn eftir, á þriðjudagsmorgni.
  • Verdi hvatti hópinn til að fara sjálf út af vellinum og kanna flugvallarhótel fyrir hópinn.
  • Skömmu seinna bárust svo glænýjar upplýsingar frá Verdi um að Icelandair væri að kalla út áhöfn sem ætti að fara frá Íslandi kl. 19:30 og flogið yrði frá Gautaborg kl. 1:20 í nótt, aðfararnótt þriðjudags.
  • Hver og einn í hópnum fékk í upphafi 100 sænskar krónur (um 1.300 íslenskar) til að bjarga sér á vellinum, en sú upphæð síðan hækkuð í 500 sænskar krónur (um 6.500 íslenskar).

Ekki er víst að hvíld á færibandi skili hraðari endurheimt en önnur hvíld, nema síður sé. Aðsend mynd.

Hópurinn hefur staðið sig gríðarlega vel í þessum aðstæðum og stelpurnar í Þór/KA tekið þessu af miklu æðruleysi og eiga hrós skilið. Þær hafa þó áhyggjur af skyldum sínum í vinnu og tekjutapinu eftir góða daga í Gautaborg þar sem öll liðin stóðu sig vel,“ voru skilaboðin frá fararstjórunum með Þór/KA hópnum.

Stelpurnar í 3. flokki Þórs/KA bíða eftir fréttum af flugi heim, sem nú er áætlað fari frá Gautaborg kl. 1:20 í nótt.

Í frétt á mbl.is fyrr í dag kom fram að smávægileg bilun í flugvél hafi orðið til þess að Icelandair aflýsti flugi frá Gautaborg í gær og vitnað í skriflegt svar frá Guðna Sigurðssyni, upplýsingafulltrúa Icelandair, sem segir: „Flugi frá Gautaborg í gær var aflýst sökum þess að smávægileg bilun kom upp í flugvél. Aukaflug var sett upp í dag í staðinn. Þar sem fluginu var aflýst með skömmum fyrirvara var ákveðið að bjóða farþegum að bóka sér hótel á eigin vegum en fá kostnaðinn greiddan frá flugfélaginu.“

Í frétt á Vísi nú síðdegis kom fram að ástæða frestunarinnar sé vandræðagangur með varahlut í biluðu vélina og mun rangur varahlutur hafa borist.

Stelpurnar náðu 3. sætinu

Þór/KA tefldi fram þremur liðum, tveimur í G16 flokki og einu í G15. Lið 1 í G16 flokki komst í undanúrslit og endaði í 3. sæti. Lið 2 í G16 flokki féll út í átta liða úrslitum og liðið í G15 flokknum féll út í 16 liða úrslitum.

Fjórði flokkur Þórs tefldi fram tveimur liðum, öðru í 11 manna liðum og hinu í níu manna. Annað liðið féll úr leik í 16 liða úrslitum og hitt í 32 liða úrslitum.

Hafþyrnir - Hinn þyrnótti hestaljómi

Sigurður Arnarson skrifar
15. júlí 2026 | kl. 11:30

Hús dagsins: Sigtún; eldra íbúðarhús

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. júlí 2026 | kl. 09:00

Þarf sumarið að vera fullkomið?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
14. júlí 2026 | kl. 06:00

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00

Vínviður Vínlands hins góða

Sigurður Arnarson skrifar
08. júlí 2026 | kl. 10:00

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00