Þór/KA í meðbyr og fór loks upp úr fallsæti
Leikmenn knattspyrnuliðs Þórs/KA, þjálfarateymið og 124 stuðningsmenn á VÍS-velli Þórs glöddust innilega þegar Guðmundur Páll Friðbertsson dómari flautaði til leiksloka viðureignar við ÍBV í Bestu deildinni dag. Full ástæða var sannarlega til, Þór/KA vann 2:1 og komst með sigrinum upp úr fallsæti í fyrsta skipti í langan tíma.
Stelpurnar okkar í Þór/KA hófu leikinn af miklum krafti og framherjinn skeinuhætti Erin Flurey braut ísinn strax þegar um sjö mínútur voru liðnar. Erin náði boltanum við miðjuhringinn eftir slaka sendingu eins gestanna, tók á rás og komst alla leið inn að markteig án þess að neinn næði að stöðva eða hægja á henni, og skoraði af öryggi; renndi boltanum undir markvörðinn.
ERIN FLUREY SKORAR





Þór/KA var betra liðið lengi fyrri hálfleiks og ekki er ofsagt að upphaf seinni hálfleiks hafi verið draumi líkast. Ekki voru liðnar nema tvær mínútur þegar Hulda Ósk Jónsdóttir þrumaði boltanum inn á markteig utan af hægri kanti, Flurey virtist koma örlítið við hann en það var svo Bríet Jóhannsdóttir sem stýrði boltanum í netið; góð kveðjustund hjá henni að gera sigurmarkið því þetta var síðasti leikur Bríetar með Þór/KA að sinni. Hún og Emelía Ósk Kruger, sem lék síðustu mínúturnar í dag, halda á morgun til háskólanáms í Bandaríkjunum. Þær stunda nám við sama skóla og leika knattspyrnu með skólaliðinu.

Bríet Jóhannsdóttir, til vinstri, gerði síðara mark Þórs/KA í dag og það reyndist sigurmarkið þegar upp var staðið. Bríet hefur leikið vel eftir að hún fékk tækifæri til að leika framar á vellinum en undanfarin misseri.
Varnarmenn Þórs/KA gleymdu sér illilega þegar rúmlega 10 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Eyjamenn fengu hornspyrnu og þegar boltinn kom inn á markteig var Avery Mae Vanderven óvölduð á markteignum og skallaði boltann auðveldlega í markið.
Eftir mjög erfiða byrjun hefur lið Þórs/KA verið í meðbyr undanfarið og nælt í 10 stig í síðustu fimm leikjum. Eftir tap fyrir Víkingi á heimavelli 30. maí hafa stelpurnar gert jafntefli við Val í Reykjavík, unnið Þrótt heima, unnið Grindavík/Njarðvík heima, tapað fyrir Stjörnunni í Garðabæ og síðan unnið ÍBV á heimavelli í dag.
Þór/KA hefur nú 12 stig úr 12 leikjum og skaust upp í sjöunda sæti með sigrinum í dag. Grindavík/Njarðvík er einnig með 12 stig, á einn leik til góða en er með lakari markatölu, Valur er með 10 stig eftir 11 leiki og Víkingur, sem tapaði fyrir Fram í dag, er í 10. og neðsta sæti með 10 stig að loknum 12 leikjum
Telja verður góða líkur á að Stelpurnar okkar í Þór/KA verða ofan fallsætanna tveggja að lokinni 12. umferðinni; Valur tekur á móti Breiðabliki á þriðjudaginn og þá eigast einnig við Grindavík/Njarðvík og Þróttur.
Þór/KA: Alessandra Dorothy Augur - Angela Mary Helgadóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir - Margrét Árnadóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir (Hildur Anna Birgisdóttir 73.), – Hulda Ósk Jónsdóttir (Elísa Bríet Björnsdóttir 64.), Amalía Árnadóttir (Agnes Birta Stefánsdóttir 87.), Bríet Jóhannsdóttir (Birgitta Rún Finnbogadóttir 87.) - Erin Flurey (Emelía Ósk Kruger 87.).
Hús dagsins: Sigtún; eldra íbúðarhús
Þarf sumarið að vera fullkomið?
Er hægt að spila fótbolta svona?
Vínviður Vínlands hins góða