Fara í efni
Pistlar

Landsliðskona Slóvakíu til liðs við KA/Þór

KA/Þór hefur samið við slóvakíska landsliðskonu í handbolta, Lenku Ratvajská. Lenka er 25 ára, örvhent og leikur í hægra horni. Hún kemur til KA/Þórs frá HK Slovan Duslo Šaľa og skrifar undir tveggja ára samning.

Lenka hóf ferilinn hjá HC Bardejov en færði sig síðar til ŠŠK SLŠ Prešov. Þar lék hún í fimm ár með aðalliði félagsins í MOL-deildinni, sameiginlegri deild tékkneskra og slóvakískra liða. Árið 2021 gekk hún til liðs við Slovan Duslo Šaľa og hefur leikið þar síðan.

Hún varð slóvakískur bikarmeistari með liðinu á síðasta tímabili auk þess sem liðið hafnaði í öðru sæti MOL-deildarinnar. Lenka hefur verið valin besti hægri hornamaður Slóvakíu síðustu tvö tímabil og hefur leikið um 30 opinbera landsleiki.

„Lenka lýsir sér sem vinnusömum og ákveðnum liðsmanni sem leggur allt í leikinn. Hún segist kunna best við hraðan og einfaldan handbolta þar sem liðsheildin er í fyrirrúmi,“ segir í tilkynningu á vef KA. „KA/Þór væntir þess að Lenka myndi öflugt dúó í hægra horninu með Joan Johannesen, sem kom til félagsins frá Kyndli í Færeyjum.“

Hafþyrnir - Hinn þyrnótti hestaljómi

Sigurður Arnarson skrifar
15. júlí 2026 | kl. 11:30

Hús dagsins: Sigtún; eldra íbúðarhús

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. júlí 2026 | kl. 09:00

Þarf sumarið að vera fullkomið?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
14. júlí 2026 | kl. 06:00

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00

Vínviður Vínlands hins góða

Sigurður Arnarson skrifar
08. júlí 2026 | kl. 10:00

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00