Fara í efni
Pistlar

Svekkjandi tap og Þórsarar úr leik

Byrjunarlið Þórs gegn Zalgiris í Vilnius í gær.

Þór tapaði 2:0 í gær fyrir FK Zalgiris í Litháen, í seinni leik félaganna í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildar ungmenna í knattspyrnu – UEFA Youth League. Litháarnir unnu fyrri leikinn 4:3 á VÍS-velli Þórs og viðureignina því samanlegt 6:3. 

Arnar Geir Halldórsson, yfirþjálfari Þórs segir svekkjandi að hafa tapað leiknum. Litháarnir hafi skorað ódýrt mark undir lok fyrri hálfleiks, Þórsarar sótt mikið án þess að ná að skapa mörg færi „og svo skora þeir skyndisóknamark þegar við vorum komnir með marga fram seint í leiknum. Það er svekkjandi að ná ekki nýta góðar stöður sem við fengum til að skora,“ sagði Arnar Geir. 

Framherjinn Vakaris Berenta, sem gerði þrennu í fyrri leiknum, skoraði í blálok fyrri hálfleiksins og Daumantas Braskys gerði seinna mark Zalgiris þegar rúmar 10 mínútur voru eftir.

Tveir af máttarstólpum Þórsliðsins voru fjarri góðu gamni í gær. Ásbjörn Líndal Arnarsson, sem lék gríðarlega vel í vörninni í fyrri leiknum, og Sverrir Páll Ingason sem lagði þá upp eitt markanna, fóru ekki með utan. Báðir voru í byrjunarliði Þórs gegn ÍBV í Bestu deildinni um síðustu helgi og framundan er annar gríðarlega mikilvægur leikur í baráttunni um að halda sæti í deildinni, gegn Stjörnunni á laugardaginn þar sem þeir verða án efa eldlínunni.

FK Zalgiris mætir St. Patrick's Athletic frá Írlandi í næstu umferð.

Samanburður broddhlyns og garðahlyns

Sigurður Arnarson skrifar
14. október 2026 | kl. 10:45

Lífið í búningsklefanum

Pétur Guðjónsson skrifar
12. október 2026 | kl. 13:30

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00

Þegar vinnan er farin í hundana

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Norðurgata 26

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. október 2026 | kl. 10:45

Tegundir birkiættkvíslarinnar

Sigurður Arnarson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:30