Eins stigs tap Þórsara í sveiflukenndum leik
Hveragerðisheimsókn Körfuboltaþórsara í gærkvöld endaði ekki eins og best varð á kosið. Eftir að hafa leitt allan fyrri hálfleikinn gáfu Þórsarar til baka í þriðja leikhluta forskotið sem hafði náðst og hnífjöfnum lokakafla lauk með því að heimamenn í Hamri unnu eins stigs sigur, 101-100, eftir að skot Þórsara á lokasekúndunum geigaði.
Hamar - Þór (16-26) (21-25) 37-52 (35-20) (29-28) 101-100
Þórsarar byrjuðu mun betur og höfðu forystuna allan fyrri hálfleikinn. Tíu stiga munur var eftir fyrsta leikhlutann og Þórsarar juku muninn í 15 stig fyrir lok fyrri hálfleiksins. Staðan í leikhléi 37-52. Þessi fimmtán stiga munur hvarf hins vegar eins og dögg fyrir sólu í þriðja leikhlutanum, heimamenn í Hveragerði unnu hann 35-20 og jafnt fyrir lokafjórðunginn, 72-72.
Í fjórða leikhlutanum náðu heimamenn forystunni, en Þórsarar svöruðu og náðu sex stiga forskoti. Aftur sveiflaðist leikurinn heimamönnum í vil sem höfðu sex stiga forskot þegar innan við tvær mínútur voru eftir. Þórsarar unnu upp þann mun og Axel Arnarsson kom Þórsurum yfir með tveimur vítaskotum þegar 15 sekúndur voru eftir. José Medina skoraði fyrir Hamar í næstu sókn og sex sekúndur eftir þegar Þórsarar tóku leikhlé og undirbjuggu lokasóknina. Skot Justins Andrew geigaði og sigurinn var því heimamanna.
Stigahæstur Þórsara var Jalen Green með 33 stig , en Birkir Máni Daðason var stigahæstur Hamarsmanna með 30 stig.
Helsta tölfræði leiksins, stig/fráköst/stoðsendingar:
Hamar
Birkir Máni Daðason 30/10/6, Joshua Hardiman 18/14/2, Lúkas Aron Stefansson 16/5/2, Jose Medina 14/4/10, Egill Þór Friðriksson 12/7/1, Atli Rafn Róbertsson 6/3/0, Nicolas Germaan 3/1/1, Arnar Dagur Daðason 2/2/3, Kristófer Kató Kristófersson 0/1/0.
Þór
Jalen Green 33/6/1, Justin Andrew 23/5/5, Baldur Örn Jóhannesson 11/7/0, Axel Arnarsson 9/5/5, Hlynur Ingi Finnsson 9/2/5, Andri Már Jóhannesson 9/4/1, Pétur Cariglia 3/4/2, Bergvin Ingi Magnússon 3/2/2, Daníel Davíðsson 0/1/0.
Leikskýrsla og tölfræði
Staðan í 1. deild karlka
Næst:
- Fimmtudagur 15. október kl. 19:15:
Þór - Breiðablik
Hús dagsins: Norðurgata 26
Tegundir birkiættkvíslarinnar
Ljósi varpað á leyndardóma heilans
Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?