KA með örlögin í eigin höndum eftir sigur
KA sótti Stjörnuna heim í úrslitakeppni neðri hluta efstu deildar karla í knattspyrnu í dag og náði í þrjú dýrmæt stig í fallbaráttunni með sannfærandi 3:0 sigri. KA er þar með ennþá tveimur stigum á undan Þór í baráttu liðanna um að halda sæti sínu í deildinni þegar tveimur umferðum er ólokið. Ljóst er að annað þessara liða mun falla úr deildinni, þar sem FH, Stjarnan og Valur eru öll hólpin og ÍBV féll niður í Lengjudeildina eftir tap gegn Þór í dag.
Leikurinn í Garðabæ fór rólega af stað, heimamenn voru talsvert meira með boltann en algerlega bitlausir fram á við. KA-menn voru skipulagðir og vörðust vel og mun baráttuglaðari en Stjörnumenn. Og það var baráttan sem skilaði fyrsta markinu á 33. mínútu. Bakvörður Stjörnunnar fékk þá sendingu frá eigin markverði en missti boltann aðeins of langt frá sér. Birgir Baldvinsson var mættur eins og gammur, vann af honum boltann og renndi honum inn í vítateig á Hallgrím Mar Steingrímsson. Hallgrímur Mar var felldur og vítaspyrna dæmd. Hann skoraði sjálfur úr vítaspyrnunni, af miklu öryggi.

Mikael Breki Þórðarson lék mjög vel í dag eins undanfarið; mjög hæfileikaríkur leikmaður og ódrepandi baráttujaxl að auki. Mynd: Ármann Hinrik
Baráttugleði Jakobs Snæs skilaði marki
Fimm mínútum síðar bættu KA-menn öðru marki við og aftur var það baráttugleðin sem skóp það marktækifæri. Jakob Snær Árnason vann tæklingu hægra megin, hélt áfram og fór gegnum annan Stjörnumann sem fór með hálfum huga gegn Jakobi. Félagar hans í vörninni voru álíka áhugalausir og Jakob Snær fékk að vaða upp óáreittur og vanda sig við að leggja boltann út í teiginn á Adam Ægi Pálsson, sem var aleinn í heiminum og þurfti bara að renna boltanum í autt markið. 2:0 fyrir KA og þannig var staðan í leikhléi.
Skemmst er frá því að segja að Stjörnumenn voru aldrei líklegir til að breyta gangi leiksins eftir hlé. Þeir komust ekkert áleiðis gegn baráttuglöðu og samstilltu KA-liði. Valdimar Logi Sævarsson kom inn á sem varamaður á 65. mínútu og lét strax til sín taka. Rétt eftir að hann var kominn inn á völlinn fór hann illa með Benedikt V. Warén á hægri kantinum og Benedikt ákvað að hlaupa Valdimar uppi og sparka hann niður aftan frá. Að launum hlaut Benedikt að líta rauða spjaldið og þá syrti enn í álinn hjá heimaliðinu.

Jakob Snær Árnason er baráttuglaður og óþreytandi ekki síður en Mikael Breki. Jakob Snær lagði upp annað mark KA í dag, einmitt eftir mikið harðfylgi. Mynd: Ármann Hinrik
Valdimar Logi gulltryggði sigurinn
Og það var Valdimar Logi sem kláraði leikinn endanlega fyrir KA örstuttu síðar. Og enn var það meiri baráttugleði KA-manna en heimamanna sem gerði útslagið. Fyrirliðinn Hans Viktor Guðmundsson vann boltann úti hægra megin og renndi honum á Valdimar Loga sem skeiðaði inn í vítateig Stjörnunnar og setti boltann í netið af öryggi. Enginn varnarmaður nálægt. Og það voru KA-menn sem voru líklegri til að bæta við marki heldur en Stjarnan að skora. Jakob Héðinn Róbertsson misnotaði til dæmis dauðafæri á 78. mínútu þegar Valdimar Logi skilaði fyrirgjöf frá vinstri inn í markteig Stjörnunnar, þar sem Jakob Héðinn náði ekki að koma knettinum inn fyrir línuna.
Stuttu síðar bar það til tíðinda að varamaðurinn Sigurður Nói Jóhannsson kom inn á lið KA í stað Hallgríms Mars. Sigurður Nói er aðeins 16 ára gamall og lék þarna sinn fyrsta leik í meistaraflokki. Hann hefur verið sigursæll með yngri flokkum KA undanfarin ár og á leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands. Sannarlega mikið efni þar á ferð.

Hallgrímur Mar Steingrímsson braut ísinn í Garðabænum í dag með marki úr vítaspyrnu. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Frábær 3:0 sigur hjá KA og Stjarnan sá aldrei til sólar í dag. Mögulega mistókst Stjörnunni að ná upp fullri einbeitingu og krafti í leikinn, þar sem liðið var búið að bjarga sér frá falli og hafði ekki að neinu að keppa. Í það minnsta var oft stórfurðulegt að horfa upp á baráttuleysið og ráðleysið sem einkenndi liðið í dag. Liðið náði aldrei að skapa hættu nálægt vítateig KA og sumir leikmenn virtust engan áhuga hafa á því að vera inni á vellinum. Það verður samt ekki af KA-mönnum tekið að sigurinn var ekkert gefins, þeir þurftu að hafa fyrir hlutunum og þeir unnu leikinn á meiri baráttu, meiri vilja og betra skipulagi. Afar jákvæð frammistaða KA í dag og gefur þeim gott veganesti í síðustu tvo leikina, sem eru einnig gegn liðum sem hafa að engu að keppa, rétt eins og Stjarnan í dag.

KA-menn fagna sigrinum á erkifjendum sínum í Þór á dögunum. Gleðin var einnig við völd í Garðabæ í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Lið KA: Steinþór Már Auðunsson - Guðjón Ernir Hrafnkelsson, Hans Viktor Guðmundsson, André Römer, Markús Máni Pétursson, Birgir Baldvinsson (Hrannar Björn Steingrímsson 79.) - Jakob Snær Árnason, Jeppe Pedersen (Danijel Dejan Djuric 79.), Mikael Breki Þórðarson (Jakob Héðinn Róbertsson 64.), Hallgrímur Mar Steingrímsson (Sigurður Nói Jóhannsson 83.) - Adam Ægir Pálsson (Valdimar Logi Sævarsson 64.).
Staðan í úrslitakeppni neðri hluta deildarinnar
Hefðbundinni 22 leikja deildarkeppni er lokið. Sex efstu liðin halda áfram baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og mætast innbyrðis í einfaldri umferð, rétt eins og sex neðstu liðin gera. Tvö neðstu liðin að þeirri viðbót lokinni falla úr deildinni.
Tvær umferðir eru eftir af úrslitakeppni neðri hluta deildarinnar. KA sækir Valsmenn heim um næstu helgi og lokaleikurinn er heima gegn ÍBV.
- Laugardag 17. október
Valur - KA - Laugardag 24. október
KA - ÍBV
Hús dagsins: Norðurgata 26
Tegundir birkiættkvíslarinnar
Ljósi varpað á leyndardóma heilans
Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?