Fara í efni
Pistlar

Sól og sumarylur og bjart framundan

Frá Miðaldadögum á Gásum í gær. Mynd: Þorgeir Baldursson

Veðrið hefur leikið við Akureyringa og gesti bæjarins í gær og í dag. Þegar Þór og Víkingur hófu leik í Bestu deild í knattspyrnu í gær var rúmlega 20 stiga hiti, nánast logn og sólin skein á heiðum himni og hið sama er upp á teningnum í dag; tvö stór skemmtiferðaskip eru við bryggju í dag og mikill fjöldi útlendinga á vappi um bæinn, svo og fjöldi innlendra ferðamann sem líklega hafa elt góða veðrið, eins og stundum er sagt. Á Miðaldadögum á Gásum í Hörgársveit höggva þeir mann og annan í blíðunni – þó ekki bókstaflega, sem betur fer – og á morgun verður Landsmót skáta sett á Hömrum í sumarblíðu. Mjög góðu veðri er spáð næstu daga.

Ekki viðraði vel til inniveru á Akureyri eftir miðnætti í nótt. Svo hafði gleymst að slökkva ljósin handan fjallanna fallegu við utanverðan Eyjafjörð ... Mynd: Skapti Hallgrímsson

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30

Hús dagsins: Norðurgata 33

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
25. október 2026 | kl. 21:00

Beitarkóngur á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
25. október 2026 | kl. 06:00

Ber í skógi

Sigurður Arnarson skrifar
21. október 2026 | kl. 12:00