Fara í efni
Pistlar

G og H saman – Snorri áfram sveitarstjóri

G listi Grósku og H listi Hörgársveitar hafa myndað meirihluta í sveitarstjórn Hörgársveitar fyrir kjörtímabilið 2026-2030. Þessi listar fengu samtals 65,5% atkvæða í nýliðnum kosningum. Ákveðið hefur verið að ráða Snorra Finnlaugsson áfram sveitarstjóra til næstu fjögurra ára.

„Samstarfið byggir á gagnkvæmu trausti og sameiginlegri ábyrgð á framtíð sveitarfélagsins. Markmið samstarfsins er að tryggja ábyrgð í rekstri, góða þjónustu við íbúa og skynsamlega uppbyggingu samfélagsins,“ segir í tilkynningu frá nýja meirihlutanum. „Listarnir leggja áherslu á að vinna saman af heilindum og virðingu og stuðla að góðu samstarfi innan sveitarstjórnar og við íbúa sveitarfélagsins.“

Á myndinni eru Sunna María Jónasdóttir frá G lista, sem verður oddviti sveitarstjórnar, Bjarki Brynjólfsson frá H lista, í miðjunni, sem verður varoddviti og Róbert Fanndal Jósavinsson frá G lista verður formaður framkvæmda- og rekstrarnefndar.

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30

Hús dagsins: Norðurgata 33

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
25. október 2026 | kl. 21:00

Beitarkóngur á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
25. október 2026 | kl. 06:00

Ber í skógi

Sigurður Arnarson skrifar
21. október 2026 | kl. 12:00