Fara í efni
Pistlar

Smíði kirkjunnar í Grímsey mjakast áfram

Nýja Miðgarðakirkjan í Grímsey síðastliðið haust. Mynd: Sigurður Henningsson.

„Grímseyingar láta ekki deigan síga og halda staðfastlega áfram vinnu við að klára byggingu nýrrar Miðgarðakirkju. Fyrr í vikunni var tekin staða á öllu efni sem tiltækt er og lokið var við að einangra kirkjuturninn.“

Þannig hefst umfjöllun sem birtist á vef Akureyrarbæjar á fimmtudaginn. Þar segir að allir  sem vettlingi geti valdið vinni í sjálfboðavinnu við bygginguna undir stjórn Herberts Hjálmarssonar yfirsmiðs sem hefur komið nokkrar ferðir út í eyju síðan í haust og hjálpað við skipulag og framkvæmd verksins.

Mynd: Anna María Sigvaldadóttir

Að sögn Alfreðs Garðarssonar, formanns sóknarnefndar, miðar verkinu ágætlega og standa vonir til að í næstu ferð smiðsins út í eyju verði hægt að lekta kirkjuna (undirbúa veggi fyrir raflagnir og klæðningu) og flota gólfið, auk þess að ganga frá stuðlabergssteinum undir altarið.

„Í liðinni viku fékk kirkjan 300.000 króna styrk úr samfélagsverkefnasjóði Norðurorku 2024 sem kemur sér ákaflega vel. Þrátt fyrir að íbúar séu fúsir til að vinna alla þá sjálfboðavinnu sem þarf þá er óhjákvæmilegt að greitt sé fyrir bæði efni og sérþekking fagmanna, auk þess sem flutningur á efni og fólki er kostnaðarsamur.“

Mynd: Anna María Sigvaldadóttir

Mynd: Anna María Sigvaldadóttir

Ólæsir drengir og greindar stúlkur

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
27. júlí 2024 | kl. 06:00

Þræll þeirra Dufgussona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
26. júlí 2024 | kl. 11:00

Afleiðingar hins græna lífsstíls

Sigurður Arnarson skrifar
24. júlí 2024 | kl. 10:00

OpenAI: Gervigreindarbyltingin á hraðferð – er kapp best með forsjá?

Magnús Smári Smárason skrifar
23. júlí 2024 | kl. 20:00

Er unga fólkið döngunarlaust?

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
23. júlí 2024 | kl. 06:00

Þjóðvegir

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
22. júlí 2024 | kl. 11:30