Fara í efni
Pistlar

Sköpunarkraftur og fjölbreytni í samfélaginu

Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri á Akureyri setur bæjarhátíðina, Akureyrarvöku, í Lystigarðinum í kvöld. Í grein sem akureyri.net birti í dag hvetur hún bæjarbúa og gesti, til að kynna sér dagskrá hátíðarinnar; „veljið nokkra viðburði sem þið viljið ekki missa af og gefið ykkur svo tíma til að vera á ferðinni fram á kvöld og njótið stemmningarinnar. Leyfið Akureyrarvöku einfaldlega að koma ykkur á óvart,“ skrifar bæjarstjórinn.

Berglind Ósk segir Akureyrarvöku og áherslur hennar „sýna okkur á skýran hátt hver við erum. Á Akureyri er samfélag hæfileikaríks fólks með ólíkan bakgrunn, ólíka sýn og ólík áhugamál. Í dagskránni má til að mynda finna íþróttaviðburði, tónleika, listsýningar, froðudans, ljóðaupplestur, skemmtun fyrir alla fjölskylduna, vísbendingar um sögu bæjarins og hugmyndir um framtíðina. Á dagskránni eru ríflega hundrað viðburðir sem endurspegla á einstaklega skýran hátt breiddina, sköpunarkraftinn og fjölbreytnina í samfélaginu okkar.“

  • Grein Berglindar Óskar:

Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað - Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30