Fara í efni
Pistlar

Götulokanir, drónabann og hundarnir heima

Það hefur líklega ekki farið framhjá Akureyringum að fram undan um helgina er Akureyrarvaka, með um 100 viðburðum víða um bæinn, en þó verður mest um að vera í miðbænum og nágrenni. 

Að venju verður tilteknum götum lokað vegna þeirra viðburða og mannfjölda sem væntanlega sækir miðbæinn um helgina.

  • Miðbærinn - lokað frá kl. 12 á föstudag til kl. 9 að morgni sunnudags. Hér er átt við göngugötuna, þ.e. Hafnarstræti frá Kaupvangsstræti að Ráðhústorgi, Ráðhústorgið sjálft, Túngötu, Strandgötu milli Hofsbótar og Ráðhústorgs og Skipagötu milli Hofsbótar og Ráðhústorgs.
  • Kaupvangsstræti frá Eyrarlandsvegi niður að Hafnarstræti - Listagilið - lokað frá kl. 12 á laugardag til kl. 9 að morgni sunnudags.
  • Mýrarvegur milli Goðabyggðar og Vanabyggðar, sem og Hrafnagilsstræti frá Mýrarvegi að Byggðavegi - lokað kl. 16-19 á laugardag vegna garðtónleika í Hrafnagilsstrætinu. Hrafnagilsstræti þó opið fyrir íbúa í götunni.

Akureyrarbær hvetur fólk til að fá sér ókeypis far með strætisvögnum, nota umhverfisvænar samgöngur og minnir á að fátt er hollara en góð gönguferð. 

Skiljið hundana eftir heima

Í tilkynningu Akureyrarbæjar er vísað í samþykkt Akureyrarbæjar um hundahald:

  • Vakin er athygli á því að samkvæmt 12. grein samþykktar Akureyrarbæjar um hundahald er óheimilt að fara með hunda á samkomur eins og Akureyrarvöku.
  • Umferð dróna er bönnuð nema með leyfi hátíðarhaldara og flugturns Akureyrarflugvallar.

Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað - Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30