Fara í efni
Pistlar

Akureyrarvaka – Hvað er á dagskrá í dag?

Mikið fjör við Sundlaug Akureyrar í gærkvöld; löðrandi gleði, eins og það var kallað enda var grasflötin fyllt með froðu og gestum boðið að sleppa fram af sér beislinu. Raftónlistarmaðurinn Pitenz spilaði músík lengi vel og svo mætti akureyrski rapparinn Saint Pete, einn sá vinsælasti hér á landi, og skemmti froðudönsurunum og öðrum sundlaugargestum. Meira um það síðar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Akureyrarvaka, árleg afmælishátíð bæjarins, hófst í gær með nokkrum viðburðum og var sett formlega í gærkvöld á samkomunni Rökkurró í Lystigarðinum.

Löng hefð er fyrir því að bæjarhátíðin sé haldin sem næst afmælisdegi Akureyrar, 29. ágúst, og svo skemmtilega vill til að þessu sinni að hann ber upp á laugardag. Í dag er afmælinu því fagnað á réttum degi, þegar 164 ár eru síðan Akureyri fékk kaupstaðarréttindi.

  • Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá í dag eins og sjá má á listanum hér að neðan sem akureyri.net tók saman.
  • Neðst eru svo hlekkir á styttri lista; Tónlist og tónleikar, Myndlist og sýningar, Mannlíf og Fyrir fjölskylduna.

Í DAG, LAUGARDAG

Smellið á rauða letrið til að sjá frekari upplýsingar um þann tiltekna viðburð.


Hér eru hlekkir á fréttir þar sem búið er að skipta viðburðum dagsins niður í nokkra flokka.


Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað - Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30