Fara í efni
Pistlar

Sigur í síðasta leiknum og Þór endar í 2. sæti

Yvette Adriaans og Chloe Wilson voru áberandi í sigri Þórs á Snæfelli í gær. Yvette með 26 stig, Chloe með 29 stig, 19 fráköst og 47 framlagspunkta. Myndirnar eru úr sigurleik liðsins gegn Vestra á sunnudag. Myndir: Helgi Heiðar Jóhannesson.

Kvennalið Þórs í körfubolta vann Snæfell í lokaleik sínum í 1. deildinni í gærkvöld með 17 stiga mun, 89-72. Þar með endar liðið í 2. sæti, með jafnmarga sigra og Fjölnir, en betri árangur í innbyrðis viðureignum. Þór vann heimaleikinn gegn Fjölni með 22 stigum, en Fjölnir vann sinn heimaleik með 19 stiga mun.

Þór hafði forystuna allan leikinn gegn Snæfelli, en náði þó ekki afgerandi forystu í fyrri hálfleiknum, mest 11 stigum, en gestirnir minnkuðu muninn í fjögur stig fyrir leikhlé. Það var ekki fyrr en í þriðja leikhlutanum sem Þórsliðið náði góðu áhlaupi og jók forskotið í 17 stig. Gestirnir eygðu smá von um miðjan fjórða leikhlutann, minnkuðu muninn í tíu stig, en komust ekki nær og 17 stig skildu liðin að þegar leik lauk.

Þór - Snæfell (25-19) (13-15) 38-34 (26-16) (25-22) 89-72

Chloe Wilson var með 47 framlagspunkta, tvöfalda tvennu, eins og næstum alltaf, skoraði 29 stig og tók 19 fráköst. Yvette Adriaans skorðai 26 stig og Emma Karólína Snæbjarnardóttir 18 stig, auk þess að gefa sex stoðsendingar og verja tvö skot. Hjá Snæfelli var það Anna Soffía Lárusdóttir sem var atkvæðamest, skoraði 24 stig.

Helstu tölur leikmanna Þórs, stig/fráköst/stoðsendingar:

  • Chloe Wilson 29/19/4 - 47 framlagspunktar
  • Yvette Adriaans 26/6/1
  • Emma Karólína Snæbjarnardóttir 18/9/6
  • Emilie Ravn 10/4/4
  • Karen Lind Helgadóttir 3/3/2
  • Hjörtfríður Óðinsdóttir 3/0/0
  • Sigurlaug Eva Jónasdóttir 0/3/1

Tölfræði leiksins

Lokastaðan í deildinni

Niðurstaðan hjá Þórsliðinu er 2. sætið eins og áður sagði. Aþena vann deildina, vann 17 leiki og tapaði aðeins einum, en það var heimaleikur liðsins gegn Þór í upphafi tímabilsins. Þór og Fjölnir unnu 15 leiki og Selfoss þar á eftir með 12 sigra.

Chloe Wilson var nær alltaf stigahæst í Þórsliðinu, en hún endaði deildarkeppnina með 26,1 stig að meðaltali í leik. Iho Lopez var að jafnaði öflugust í fráköstunum, tók að meðaltali 14,9 fráköst í leik. Emilie Ravn átti flestar stoðsendingar í liðinu, 4,3 að meðaltali í leik.

Umspil fjögurra liða fram undan

Aþena hefur þegar tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni, en Þór, Fjölnir og Selfoss fara í umspil, ásant Hamri/Þór sem endaði í 9. sæti Bónusdeildarinnar. Eitt þessara liða fær sæti í Bónusdeildinni. Í undanúrslitum umspilsins mætast Hamar/Þór og Selfoss annars vegar og Þór og Fjölnir hins vegar. 

Leikirnir í undanúrslitum umspilsins:

  • Sunnudagur 29. mars kl. 18: Þór - Fjölnir
  • Miðvikudagur 1. apríl kl. 19:15: Fjölnir - Þór
  • Mánudagur 6. apríl: Þór - Fjölnir
  • Föstudagur 10. apríl: Fjölnir - Þór (ef þarf)
  • Þriðjudagur 14. apríl: Þór - Fjölnir (ef þarf)

Vinna þarf þrjá leiki til að fara áfram í úrslitaviðureign umspilsins.

Landnám skógarfugla

Sigurður Arnarson skrifar
25. mars 2026 | kl. 11:00

Gildi – þinn innri áttaviti

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
24. mars 2026 | kl. 09:00

Hús dagsins: Aðalstræti 54 og 54a

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
23. mars 2026 | kl. 06:00

Skammtað í aska

Jóhann Árelíuz skrifar
22. mars 2026 | kl. 06:00

Haldið á brattann

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. mars 2026 | kl. 06:00

Tær var sú fegurð, A 7359

Orri Páll Ormarsson skrifar
20. mars 2026 | kl. 10:00