Fara í efni
Pistlar

Bjarni Ófeigur til 2028, ungur Dani til Þórs

Bjarni Ófeigur Valdimarsson og Bertram Simonsen.

Bjarni Ófeigur Valdimarsson framlengdi í gær samning við handknattleiksdeild KA um tvö ár og er nú samningsbundinn félaginu til vors 2028. Þá tilkynnti handknattleiksdeild Þórs að samið hefði verið við danskan rétthentan miðjumann og skyttu, og öflugan varnarmann, Bertram Simonsen sem kemur frá danska félaginu Lemvig Thyborøn.

„Bjarni sem er 27 ára gamall er að leika sitt annað tímabil með KA og var hann þriðji markahæsti leikmaður Olísdeildarinnar með 147 mörk auk þess að vera langflestar stoðsendingar í deildinni eða 122 talsins. Ekki nóg með að fara fyrir sóknarleiknum þá er Bjarni algjör lykilmaður í öflugum varnarleik KA liðsins, þess má geta að Bjarni var lengi vel markahæsti leikmaður deildarinnar en vegna meiðsla á fingri missti hann af nokkrum leikjum,“ segir í tilkynningu á vef KA.

Í tilkynningu á vef Þórs segir um Danann: Bertram er rétthentur miðjumaður/vinstri skytta og öflugur varnarmaður fæddur árið 2004 í Herning, Danmörku og spilaði hann með yngri flokkum Herning FH og Skanderborg ásamt því að hafa spilað með yngri landsliðum Danmörku. Bertram hefur leikið með Lemvig undanfarin tvö ár en spilaði þar áður með HC Midtjylland.

Haldið á brattann

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. mars 2026 | kl. 06:00

Tær var sú fegurð, A 7359

Orri Páll Ormarsson skrifar
20. mars 2026 | kl. 10:00

Öskubuska, Elle Woods og Sandy í Grease

Rakel Hinriksdóttir skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:00

Tré ölrakóngsins – Fyrri hluti

Sigurður Arnarson skrifar
18. mars 2026 | kl. 08:30

Nafnalágin

Jóhann Árelíuz skrifar
15. mars 2026 | kl. 06:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30