Fara í efni
Pistlar

Dagur frestaðra leikja: Handbolti og körfubolti

Þrír leikir eru á dagskrá Akureyrarliða í dag, allt frestaðir leikir. Leikur Þórs og Vestra í 1. deild kvenna í körfubolta, sem frestað var um liðna helgi, er á dagskrá í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag. KA/Þór átti að mæta Fram syðra í gær í lokaumferð Olísdeildar kvenna í handbolta og gera aðra tilraun í dag. Þá er leikur Selfoss og Þórs í 1. deild karla kominn á dagkrá á Selfossi þriðja sinni eftir frestanir í gær og fyrradag.

Þór tekur á móti Vestra

Eftir að liðinu var dæmt tap á móti Selfyssingum á fimmtudagskvöld er Þór í þeirri stöðu að þurfa að vinna tvo síðustu leiki sína til að endurheimta 2. sætið. Nú þegar er ljóst að Aþena er deildarmeistari og hefur tryggt sér sæti í Bónusdeildinni á næsta tímabili. Fjölnir er í 2. sæti, er með 15 sigra og hefur lokið sínum leikjum. Þór er í 3. sætinu með 13 sigra og nægir að ná Fjölni vegna betri árangurs í innbyrðis viðureignum liðanna.

Stutt er á milli leikjanna sem eftir eru því Þór mætir Vestra í dag og svo Snæfelli á þriðjudagskvöld, en báðir leikirnir eru á heimavelli.

  • 1. deild kvenna í körfuknattleik
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 16:15
    Þór - Vestri
  • Útsending: KKÍ TV á Sýn
    Áskriftarsjónvarp

Þór vann stórsigur í fyrri leik liðanna sem fram fór á Ísafirði í lok nóvember, 132-50. Vestri er í botnsæti deildarinnar án sigurs, en auk leiksins við Þór á liðið eftir að mæta KV, sem er í næstneðsta sæti deildarinnar.

Olísdeild kvenna að klárast

KA/Þór leikur lokaleik sinn í Olísdeildinni þetta árið í dag þegar liðið sækir Fram heim í Úlfarsárdalinn. Ljóst er að KA/Þór endar í 6. sæti deildarinnar og mætir Haukum, sem eru og verða í 3. sætinu, í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

  • Olísdeild kvenna í handbolta
    Lambhagahöllin í Úlfarsárdal kl. 17:00
    Fram - KA/Þór
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Báðir leikir þessara liða í vetur hafa verið hnífjafnir og unnust báðir með eins marks mun á útivelli. KA/Þór vann Fram fyrir sunnan í október, 30-29, en tapaði heimaleiknum í janúar, 20-21.

Tvífrestaður leikur sem breytir engu

Leikur karlaliðs Þórs í körfubolta í lokaumferð 1. deildarinnar er á dagskrá í kvöld, en honum var frestað í gær og fyrradag eins og fram hefur komið í fréttum. Eftir úrslit annarra leikja í lokaumferðinni, sem allir voru spilaðir í fyrrakvöld, skiptir leikur Selfoss og Þórs afar litlu máli. Þór er ekki lengur í fallhættu eftir að Hamar tapaði fyrir Snæfelli. Fylkir vann Breiðablik, sem þýðir að Hamar fellur í 2. deild. Þór og Fylkir hafa bæði unnið fjóra leiki og eru í 10. og 11. sæti deildarinnar, fara því ekki í umspil um laust sæti í Bónusdeildinni.

Fyrir Selfyssinga skiptir sigur ekki heldur máli upp á röðun í sæti, þeir hafa unnið níu leiki og eru í 8. sætinu. KV er sæti ofar með tíu sigra, en það nægir Selfyssingum ekki að ná KV vegna lakari árangurs í innbyrðis viðureignum.

  • 1. deild karla í körfubolta
    Vallaskóli á Selfossi kl. 19:30
    Selfoss - Þór
  • Útsending: SÝN KKÍ TV
    Áskriftarsjónvarp

Þór tapaði fyrri viðureigninni við Selfyssinga í vetur með sex stiga mun, 75-81, á Akureyri.

Höttur á Egilsstöðum tryggði sér deildarmeistaratitilinn og sæti í Bónusdeildinni á næsta tímabili með sigri á Sindra í lokaumferðinni. Röð liðanna er þessi: 1. Höttur, 2. Sindri, 3. Haukar, 4. Fjölnir, 5. Breiðablik, 6. Skallagrímur, 7. KV, 8. Selfoss, 9. Snæfell, 10. Þór, 11. Fylkir, 12. Hamar.

Liðin í 2.-9. sæti fara í umspil um annað laust sæti í Bónusdeildinni, Sindri og Snæfell eigast við, Haukar og Selfoss, Fjölnir og KV, og Breiðablik og Skallagrímur.

Skammtað í aska

Jóhann Árelíuz skrifar
22. mars 2026 | kl. 06:00

Haldið á brattann

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. mars 2026 | kl. 06:00

Tær var sú fegurð, A 7359

Orri Páll Ormarsson skrifar
20. mars 2026 | kl. 10:00

Öskubuska, Elle Woods og Sandy í Grease

Rakel Hinriksdóttir skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:00

Tré ölrakóngsins – Fyrri hluti

Sigurður Arnarson skrifar
18. mars 2026 | kl. 08:30

Nafnalágin

Jóhann Árelíuz skrifar
15. mars 2026 | kl. 06:00