Fara í efni
Pistlar

Opið hús og togari hjá ÚA vegna 80 ára afmælis

Frystihús ÚA við Fiskitanga á Akureyri. Togarinn Kaldbakur EA 1 liggur við bryggju, fánum prýddur. Mynd: Hörður Geirsson

Í tilefni af 80 ára afmæli Útgerðarfélags Akureyringa er almenningi boðið að kynna sér starfsemi ÚA við Fiskitanga á Akureyri í dag, laugardaginn 31. maí, frá klukkan 11:00 til 13:00.

„Fiskvinnsluhús ÚA verður opið, ‏þar fer fram tæknivædd bolfiskvinnsla og unnar eru ferskar og frystar afurðir fyrir neytendamarkað,“ segir í tilkynningu frá Samherja.

Togarinn Kaldbakur EA 1 verður við Togarabryggju, sem verður opinn almenningi á sama tíma.

Í matsal ÚA verður boðið upp á veitingar í tilefni tímamótanna.

Fyrir framan fiskvinnsluhúsið er ljósmyndasýningin Myndbrot úr sögu ÚA, þar sem varpað er ljósi á sögu félagsins í 80 ár.

Sýning á Iðnaðarsafninu

Á sjómannadaginn, sunnudaginn 1. júní klukkan 13:00 verður opnuð sýningin Fagur fiskur úr sjó í Iðnaðarsafninu á Krókeyri á Akureyri. Á sýningunni er saga ÚA sögð með ljósmyndum, kvikmyndum og munum.

Sýningin markar upphaf að söfnun á sögum og minningum þeirra sem störfuðu hjá ÚA, segir í tilkynningunni frá Samherja.

Ókeypis er á sýninguna þennan dag og veitingar verða í boði.

Allir togarar ÚA við Torfunefsbryggju, árið 1961. Togararnir voru í landi vegna verkfalls. Mynd: Eðvarð Sigurgeirsson.

Kanínur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
30. júní 2025 | kl. 11:30

Eldhúsdagsumræður

Jóhann Árelíuz skrifar
29. júní 2025 | kl. 06:00

Lýsið frá Tona og Jónda

Orri Páll Ormarsson skrifar
27. júní 2025 | kl. 10:00

„Við erum einu skrefi frá því að sagan endurtaki sig“

Halldóra Margrét Pálsdóttir skrifar
26. júní 2025 | kl. 08:15

„Ég yfirgaf ekki Rússland, Rússland yfirgaf mig“

Sveinn Brimar Jónsson skrifar
26. júní 2025 | kl. 08:15

Skaðvaldar á birki

Sigurður Arnarson skrifar
25. júní 2025 | kl. 09:30