„Við erum einu skrefi frá því að sagan endurtaki sig“

Daglegt líf háskólanema í Lettlandi er oft á tíðum frábrugðið því sem íslenskir nemendur þekkja. Á síðustu þremur árum hafa Lettar búið við ótta og óvissu eftir innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022, en einungis 24 ár eru síðan Lettland varð sjálfstætt lýðræðisríki eftir fall Sovétríkjanna.
Í byrjun maí heimsóttu stúdentar frá Háskólanum á Akureyri nemendur í Ríga, höfuðborg Lettlands. Undanfarin ár hefur Háskólinn á Akureyri verið í samstarfi við Stradina háskólann í Ríga og staðið fyrir slíkum heimsóknum. Yfirskrift ferðarinnar í ár var Líf ungs fólks í skugga stríðs. Þar fengu íslensku nemendurnir innsýn í veruleika fjölmiðlafólks frá Rússlandi sem starfar nú í útlegð og kynntust starfsemi mismunandi góðgerðarsamtaka í borginni. Þeir ræddu einnig við nemendur í Ríga um þau áhrif sem stríðið hefur á daglegt líf fólks.
Íslenski hópurinn í heimsókn í Klub Maja, ungmennahúsi í Ríga. Frá vinstri: Tinna Björt Jónsdóttir, Halldóra Margrét Pálsdóttir, Katrín Birta Björgvinsdóttir, Katrín Ósk Axelsdóttir, Andri Broddason, Daniels Liecis, formaður ungmennahússins Klubs Maja í Ríga, Sveinn Brimar Jónsson og Sigrún Stefánsdóttir kennari. Myndina tók annar kennari, Skúli Bragi Geirdal.
Līva Skapste er 20 ára nemandi við Stradina háskólann í Ríga. Hún hefur stundað nám í margmiðlun á meðan stríð hefur geisað í nágrannalandinu og hún segir fólk ávallt vera viðbúið hverju sem er.
„Það var áfall að heyra greint frá því þegar innrásin í Úkraínu átti sér stað. Ég hef heyrt foreldra mína tala um það hvernig lífið var þegar þau voru yngri, en núna þegar þetta er að gerast á okkar tíma er það mjög kvíðavaldandi. Stríðið er mjög nálægt okkur og ástandið varð enn raunverulegra fyrir mig þegar kærastinn minn fékk að vita að hann ætti að fara í herinn í júlí.“
Līva segir ástandið ekki hafa mikil áhrif á sína háskólagöngu og að stríðið sé ekki stórt umfjöllunarefni í náminu. Hún og samnemendur hennar hafa unnið nokkur verkefni þar sem þau hafa greint orðræðu í stríðinu og fréttaflutning en aðallega í tengslum við atburði sem hafa átt sér stað innan Lettlands.
Līva Skapste, háskólanemi í Ríga.
„Ástandið er áhættusamt og það ríkir mikil óvissa. Við erum einu skrefi frá því að Rússar ráðist aftur inn í Lettland og að sagan endurtaki sig.“
Síðustu þrjú ár hafa vegið mest á ungum drengjum að mati Līvu, en þeir eru skyldugir til að skrá sig í herinn. Hún segist óttast að þurfa einn daginn að flýja heimili sitt, sem er raunveruleiki margra í Lettlandi og í löndunum í kring. Þrátt fyrir það er Līva vongóð um framtíðina og vonast til að stríðinu ljúki. Hún vonast til þess að fá gott starf í Ríga þar sem hún getur nýtt þá hæfni sem hún hefur tileinkað sér í náminu. Hún hefur einnig áhuga á því að ferðast og vinna í mismunandi löndum ef tækifæri gefst.
„Ég vona að þessu ljúki. Ef ekki þá vona ég að þeir láti Lettland í friði. Við erum auðvelt skotmark vegna þess að við höfum margt fram að færa, við höfum til dæmis aðgang að sjónum. Ég vona að mennirnir sem fara fyrir þessu sjái að sér og átti sig á því að það sem þeir eru að gera er rangt.“
Halldóra Margrét Pálsdóttir nemur fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri


Skaðvaldar á birki

Hús dagsins: Aðalstræti 50

Eftirmatur

Frá morgni til kvölds
