Fara í efni
Pistlar

Óbreytt ástand hjá Auto ehf. að Setbergi

Athafnasvæði Auto ehf. á Svalbarðsströnd fyrir nokkrum árum.

Enn virðist engin breyting hafa orðið á umgengni á lóð Auto ehf. að Setbergi á Svalbarðsströnd og engin viðbrögð við kröfum Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra um tiltekt.

Dagsektir að upphæð 50.000 hafa verið lagðar á frá 28. október 2024, eða í rúmlega 500 daga. Innheimtuaðgerðir eru í hefðbundnu ferli og hefur fjárnám verið gert í eigninni, að því er fram kemur í fundargerð nefndarinnar frá 4. mars. Þann dag voru 496 dagar liðnir frá því að álagning dagsekta hófst. 

Við skoðun á lóðinni þann 27. febrúar var staðfest að enn hefur ekki verið brugðist við kröfum Heilbrigðisnefndarinnar um tiltekt á lóðinni. 

„Heilbrigðisnefnd ítrekar enn og aftur kröfu um tiltekt á lóðinni og að lögð verði áhersla á að hreinsa þann hluta svæðisins sem blasir við frá þjóðvegi og að öll spilliefni verði fjarlægð af svæðinu. Dagsektir verða lagðar á og innheimtuaðgerðum haldið áfram þar til úr verður bætt,“ segir í bókun nefndarinnar. 

Áður hefur komið fram í fréttum af málinu að ekki er einungis um bifreiðar að ræða. Í frétt akureyri.net frá 29. september 2024 er sagt frá því að í fundargerð nefndarinna hafi þá komið fram að innan lóðarinnar sé enn mikið magn ökutækja, hjólbarða, véla og vélahluta í afar misjöfnu ástandi. Þá megi þar einnig finna spilliefni á borð við rafgeyma og víða innan lóðarinnar séu merki um olíumengun í jarðvegi.

Hús dagsins: Gránufélagsgata 18

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
26. apríl 2026 | kl. 14:00

Súrmatur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
26. apríl 2026 | kl. 11:30

Um trjárækt árið 1916

Sigurður Arnarson skrifar
22. apríl 2026 | kl. 12:45

„Næring“ – meira en það sem er á disknum

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
21. apríl 2026 | kl. 08:00

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Ólíkt undirlag, sama útkoma – sigur Þórs

Orri Páll Ormarsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 09:30