Fara í efni
Pistlar

Jákvæð framvinda á svæði Skútabergs

Athafnasvæði Skútabergs að Moldhaugahálsi í dag. Mynd: Þorgeir Baldursson.

Vinna við gerð geymslusvæðiðs og sjónmanar á athafnasvæði Skútabergs á Moldhaugahálsi er vel á veg komin og framkvæmdir hafnar við gerð varanlegs svæðis fyrir bíla og vagna í samræmi við deiliskipulag svæðisins. Þetta var staðfest við skoðun fulltrúa Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra á dögunum og kemur fram í fundargerð nefndarinnar.

„Heilbrigðisnefnd fagnar því að framkvæmdir til að bæta umgengni um svæðið séu hafnar. Nefndin ítrekar að ásýnd svæðisins er óviðunandi og því afar mikilvægt að unnið verði markvisst að nauðsynlegum úrbótum sem miða að því að bæta ásýnd þess,“ segir í bókun nefndarinnar. Starfsmönnum heilbrigðiseftirlitsins hefur verið falið að fylgjast með framkvæmdum og upplýsa nefndina um framvindu mála á svæðinu fyrir næsta fund hennar.

Skútaberg var áminnt af Heilbrigðisnefndinni í desember þegar ekki sáust nein merki þess að fyrirtækið hefði unnið samkvæmt framkvæmdaáætlun til að bæta umgengni og ásýnd svæðisins.

Eyðum tómlæti í garð Hámundar heljarskinns!

Orri Páll Ormarsson skrifar
24. júlí 2026 | kl. 06:00

Áhrif ísaldar á gráelrideildina

Sigurður Arnarson skrifar
22. júlí 2026 | kl. 12:30

Hafþyrnir - Hinn þyrnótti hestaljómi

Sigurður Arnarson skrifar
15. júlí 2026 | kl. 11:30

Hús dagsins: Sigtún; eldra íbúðarhús

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. júlí 2026 | kl. 09:00

Þarf sumarið að vera fullkomið?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
14. júlí 2026 | kl. 06:00

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00