Fara í efni
Pistlar

Úrslitakeppnir, umspil og bikarleikir

Dymbilvikan er ekki bara vika kyrrðar og íhugunar heldur einnig úrslitakeppna í handbolta, körfubolta og blaki. Fjögur Akureyrarlið verða í baráttunni þegar líður á vikuna; KA/Þór gegn Haukum í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handbolta, Þór í umspili Bónusdeildar/1. deildar kvenna í körfubolta og kvenna- og karlalið KA í blaki hefja leik í úrslitakeppnum Unbroken-deildanna í blaki á miðvikudag og fimmtudag. Þá hefja bæði karlaliðin í fótboltanum, Þór og KA, leik í Mjólkurbikarkeppninni á laugardag. 

MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL - handbolti, körfubolti, blak

KA/Þór mætir Haukum öðru sinni í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handbolta á miðvikudag. Haukar unnu fyrstu viðureign liðanna með þriggja marka mun, 27-24, í Hafnarfirðinum á laugardag. KA/Þór verður því að vinna á miðvikudag til að tryggja sér oddaleik í Hafnarfirði á laugardag og eiga möguleika á að komast í undanúrslit.

  • Olísdeild kvenna í handbolta
    Úrslitakeppni, 1. umferð, leikur 2
    KA-heimilið kl. 18
    KA/Þór - Haukar
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Það lið sem vinnur tvo leiki fer áfram í undanúrslit. 

- - -

Önnur viðureign Þórs og Fjölnis verður á miðvikudag í Grafarvoginum. Þór endaði ofar í deildinni og byrjaði því á heimaleik á sunnudag, en tapaði honum með níu stiga mun, 71-80. 

  • Bónusdeild/1. deild kvenna í körfubolta
    Umspil, undanúrslit, leikur 2
    Dalhús í Grafarvogi kl. 18
    Fjölnir - Þór
  • Útsending: KKÍ TV á Sýn
    Áskriftarsjónvarp

Vinna þarf þrjá leiki til að fara áfram í úrslitaviðureign gegn Hamri/Þór eða Selfossi um sæti í Bónusdeildinni. Þriðji leikur liðanna verður á Akureyri á annan í páskum.

- - -

Lokaleikur kvennadeildar Kjarnafæðimótsins í knattspyrnu er á dagskrá á miðvikudag og í raun úrslitaleikur þar sem liðin sem mætast eru í tveimur efstu sætum mótsins. Það eru tvö lið frá Þór/KA.

  • Kjarnafæðimótið í knattspyrnu, kvennadeild
    Boginn kl. 18
    Þór/KA - Þór/KA2

- - -

Fjögur efstu liðin í Unbroken-deild kvenna í blaki hefja úrslitakeppni deildarinnar á miðvikudag. KA endaði í 2. sæti deildarinnar og mætir Völsungi í undanúrslitum, en Húsvíkingar enduðu í 3. sætinu. Hin viðureign undanúrslitanna er á milli HK og Aftureldingar. 

  • Unbroken-deild kvenna í blaki
    Undanúrslit, leikur 1
    KA-heimilið kl. 20
    KA - Völsungur

Vinna þarf tvo leiki til að komast áfram í úrslitin. Annar leikur liðanna verður á Húsavík á annan í páskum.

KA og Völsungur mættust fjórum sinnum í deildinni í vetur og vann KA allar viðureignirnar, 3-1 á Húsavík í október, 3-0 á Húsavík í nóvember, 3-0 á Akureyri í febrúar og 3-1 á Akureyri í mars.

- - -

FIMMTUDAGUR 2. APRÍL - blak

Fjögur efstu liðin í Unbroken-deild karla í blaki fara í úrslitakeppni deildarinnar. KA endaði í 2. sæti deildarinnar og mætir Aftureldingu, sem endaði í 3. sætinu, í undanúrslitum. Hin viðureignin er á milli deildarmeistara Hamars og Þróttar R. 

  • Unbroken-deild karla í blaki
    Undanúrslit, leikur 1
    KA-heimilið kl. 14
    KA - Afturelding

Vinna þarf tvær viðureignir til að fara áfram í úrslitaeinvígi deildarinnar. Annar leikur liðanna verður í Mosfellsbæ 7. apríl og oddaleikur á Akureyri 10. apríl, ef þarf. 

Þessi lið mættust þrisvar í deildinni í vetur og vann KA allar viðureignirnar. Sú fyrsta endaði með 3-1 sigri KA í Mosfellsbæ í október, síðan 3-2 á Akureyri í febrúar og 3-0 á Akureyi í mars.

LAUGARDAGUR 4. APRÍL - fótbolti, handbolti

Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu er hafin fyrir nokkru með forkeppni og komið að 32ja liða úrslitunum þar sem liðin í Bestu deildinni koma inn í pottinn. Fyrstu leikir 32ja liða úrslitanna verða laugardaginn 4. apríl og þá eiga bæði Þór og KA leik.

Þór fékk heimaleik og fer hann fram í Boganum þar sem frágangi við nýja keppnisvöllinn á svæðinu er ekki lokið. Liðin eru bæði að koma inn í keppnina í 32ja liða úrslitin.

  • Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu, 32ja liða úrslit
    Boginn kl. 14
    Þór - FH
  • Útsending: Rúv
    Opin dagskrá

KA fékk útileik gegn Hetti og er leikið í Fellabæ. Höttur hóf leik í keppninni með 5-0 sigri á Neista frá Djúpavogi, en Neisti hafði áður unnið Einherja á Vopnafirði 5-2. KA kemur inn í keppnina í 32ja liða úrslitunum. 

  • Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu, 32ja liða úrslit
    Rafey-völlurinn í Fellabæ kl. 14
    Höttur - KA

Höttur og KA mætast á Rafey-vellinum, svokallaða, sem er þó betur þekktur undir nafninu Fellavöllur, en völlurinn er í Fellabæ.

- - -

Þriðji leikur KA/Þórs og Hauka er á dagskrá á laugardag, ef þörf er á. Það veltur á úrslitum í viðureign liðanna á miðvikudagskvöld. Vinni Haukar á Akureyri á miðvikudag, er enginn leikur á laugardag því þá er KA/Þór úr leik. Vinni KA/Þór á miðvikudag er oddaleikur í Hafnarfirði á laugardag.

  • Olísdeild kvenna í handbolta
    Úrslitakeppni, 1. umferð, leikur 3 - ef þarf
    Ásvellir í Hafnarfirði
    Haukar - KA/Þór
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Búskapur á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
29. mars 2026 | kl. 06:00

Landnám skógarfugla

Sigurður Arnarson skrifar
25. mars 2026 | kl. 11:00

Gildi – þinn innri áttaviti

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
24. mars 2026 | kl. 09:00

Hús dagsins: Aðalstræti 54 og 54a

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
23. mars 2026 | kl. 06:00

Skammtað í aska

Jóhann Árelíuz skrifar
22. mars 2026 | kl. 06:00

Haldið á brattann

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. mars 2026 | kl. 06:00