Naumt tap hjá KA/Þór í fyrstu viðureign
KA/Þór þurfti að sætta sig við ósigur gegn Haukum á útivelli sl. laugardag í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni efstu deildar kvenna í handknattleik, þrátt fyrir að hafa haft forystuna drjúgan hluta leiksins. Lokatölur urðu 27:24 Haukum í vil og KA/Þór þarf að vinna næsta leik á miðvikudaginn í KA-heimilinu, til að knýja fram oddaleik.
Fyrri hálfleikur var hnífjafn en KA/Þór þó yfirleitt á undan að skora. Haukar léku án síns markahæsta leikmanns, Jóhönnu Margrétar Sigurðardóttur, og áttu í stökustu vandræðum gegn sterkri vörn gestanna. Staðan í leikhléi var 13:11 KA/Þór í vil.

Susanne Denise Pettersen var markahæst hjá KA/Þór. Hér er hún tekin föstum tökum í bikarleik gegn Gróttu á Seltjarnarnesi í vetur.
Haukar betri í seinni hálfleik
Framan af seinni hálfleik hélt KA/Þór frumkvæðinu en eftir að vörn Haukastúlkna þéttist náðu þær að snúa leiknum sér í vil. Í stöðunni 18:18 skoruðu Haukar fjögur mörk í röð og þann mun náði KA/Þór aldrei að brúa. Lokatölur 27:24.
Susanne Denise Pettersen var markahæst hjá KA/Þór eins og oft áður en skotnýtingin hefur þó stundum verið betri. Bernadett Leiner stóð fyrir sínu í markinu en Matea Lonac er enn fjarri góðu gamni vegna höfuðmeiðsla.
KA/Þór þarf sigur á miðvikudag
Liðin mætast aftur í KA-heimilinu á miðvikudaginn kl. 18 og þá er að duga eða drepast fyrir KA/Þór. Tap í þeim leik þýðir að liðið er komið í sumarfrí en með sigri tryggja norðanstúlkur sér oddaleik í Hafnarfirði um næstu helgi. Sigurvegarinn í einvíginu mætir síðan ÍBV í undanúrslitum. Miðað við frammistöðuna í leiknum á laugardaginn á KA/Þór raunhæfa möguleika á að komast áfram og góður stuðningur áhorfenda í næsta leik gæti skipt sköpum.

Lydía Gunnþórsdóttir gerði sex mörk gegn Haukum á laugardag.
Mörk KA/Þórs: Susanne Denise Pettersen 7, Lydía Gunnþórsdóttir 6 (4 víti), Sólveig Lára Kristjánsdóttir 3, Anna Þyrí Halldórsdóttir 3, Kristín A. Jóhannsdóttir 2, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 1, Tinna Valgerður Gísladóttir 1, Trude Blestrud Hakonsen 1.
Varin skot: Bernadett Leiner 14 (34,1%).
Mörk Hauka: Embla Steindórsdóttir 9 (4 víti), Inga Dís Jóhannsdóttir 7, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 5, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 4, Alexandra Líf Arnarsdóttir 1, Thelma Melsted Björgvinsdóttir 1.
Varin skot: Elísa Helga Sigurðardóttir 9, Sara Sif Helgadóttir 4.
Landnám skógarfugla
Gildi – þinn innri áttaviti
Hús dagsins: Aðalstræti 54 og 54a
Skammtað í aska