Fara í efni
Pistlar

Markvarða-mæðgur mættust í dag

Mæðgurnar og markverðirnir Ólöf Maren Bjarnadóttir (ÍBV) og Selma Sigurðardóttir (KA/Þór) mættust í leik KA/Þórs og ÍBV í efstu deild kvenna í handknattleik í dag. Báðar komu þær við sögu í leiknum og vörðu skot en Selma þurfti að játa sig sigraða að lokum gegn dótturinni og stöllum hennar í ÍBV. Mynd: Facebook-síða KA.

Svo skemmtilega vildi til í leik KA/Þórs gegn ÍBV í efstu deild kvenna í handknattleik í dag að mæðgur mættust á vellinum. Selma Sigurðardóttir var einn þriggja markvarða KA/Þórs og dóttir hennar Ólöf Maren Bjarnadóttir var annar markvarða ÍBV. Frá þessum skemmtilega tengslum er greint á Facebook-síðu KA.

Gamla brýnið Selma Sigurðardóttir hefur verið á skýrslu hjá KA/Þór í nokkrum leikjum upp á síðkastið í fjarveru Mateu Lonac. Þótt hún sé á 44. aldursári og orðin amma þá kann hún þetta alltsaman ennþá, kom inn á í dag og varði skot. 

Ólöf Maren dóttir hennar lék lengi með KA/Þór en er nú í herbúðum Eyjakvenna. Hún kom líka inn á í dag og varði meðal annars vítakast.

Svo fór að lokum að Ólöf Maren og stöllur hannar í Eyjaliðinu höfðu betur gegn norðankonum.

Umfjöllun akureyri.net um viðureign KA/Þórs og ÍBV í dag.

Knappareynir

Sigurður Arnarson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 09:30

Verk gömlu meistaranna

Jóhann Árelíuz skrifar
12. apríl 2026 | kl. 06:00

Birki og beit

Sigurður Arnarson skrifar
08. apríl 2026 | kl. 08:00

Hús dagsins: Hafnarstræti 35

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. apríl 2026 | kl. 22:00

Þegar lífið hægir á manni

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
07. apríl 2026 | kl. 08:00

Höfðingsskapur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
05. apríl 2026 | kl. 06:00