KA tekur á móti Þrótti í úrslitum karla í blaki
Úrslitaeinvígi KA og Þróttar R. um Íslandsmeistaratitil karla í blaki hefst í kvöld. Það verða liðin sem enduðu í 2. og 4. sæti Unbroken-deildar karla sem berjast um Íslandsmeistaratitilinn. KA sló Aftureldingu út í undanúrslitunum og Þróttur sló út deildarmeistara Hamars. Það þýðir að KA er komið með oddaleiksréttinn og byrjar á heimavelli í úrslitaeinvíginu.
- Úrslitakeppni Unbroken-deildar karla í blaki
KA-heimilið kl. 18:30
KA - Þróttur R. - Útsending: Livey.events
Áskrift að rás eða stökum leikjum
Í Unbroken-deild karla var spiluð þreföld umferð. Þróttur kom einu sinni norður, en KA fór tvisvar suður. Þróttur og KA mættust tvisvar í deildarkeppninni í Reykjavík í nóvember. Þróttur vann fyrri viðureignina 3-1, en KA þá seinni 3-2. KA vann þriðju viðureign liðanna 3-1 á sínum heimavelli í byrjun janúar.
Vinna þarf þrjá leiki til að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Annar leikur liðanna fer fram í Laugardalshöllinni sunnudaginn 19. apríl.
Verk gömlu meistaranna
Birki og beit
Hús dagsins: Hafnarstræti 35
Þegar lífið hægir á manni