Fara í efni
Pistlar

Kvennalið KA í blaki meistari meistaranna

KA er meistari meistaranna í blaki kvenna eftir að hafa lagt Íslands- og bikarmeistara HK að velli á laugardag. Mynd af Facebook-síðu KA.

Kvennalið KA í blaki tryggði sér titilinn Meistari meistaranna um helgina þegar liðið lagði Íslandsmeistara HK að velli, 3:1. Í karlaflokki keppti KA, sem er ríkjandi Íslandsmeistari, einnig um þennan titil en tapaði naumlega fyrir bikarmeisturum Hamars 3:2, eftir æsispennandi oddahrinu.

Leikir Meistara meistaranna marka upphaf keppnistímabilsins í blaki og þar mætast Íslandsmeistarar og bikarmeistarar frá síðasta tímabili. HK vann alla þrjá titlana í kvennaflokki á síðasta tímabili og mætti því KA, sem varð í öðru sæti Íslandsmótsins. 

KA-konur sterkari gegn HK

Fyrsta hrinan í leik KA og HK var jöfn og spennandi. Liðin skiptust á að hafa frumkvæðið en KA hafði betur undir lokin og vann 27:25 eftir upphækkun.

HK svaraði fyrir sig í annarri hrinu og hafði töluverða yfirburði. HK vann þá hrinu örugglega, 25:13 en KA lét það þó ekki slá sig út af laginu og náði forystunni aftur með því að vinna þriðju hrinuna 25:17.

Fjórða hrinan var síðan æsispennandi. KA náði góðu forskoti í upphafi en HK klóraði í bakkann og tókst að jafna. Úrslitin réðust í upphækkun og þar reyndust KA-konur sterkari. Þær unnu 27:25 og leikinn þar með 3:1.

Hamar hafði betur í oddahrinu

Karlaleikurinn var ekki síður spennandi. KA byrjaði betur og vann fyrstu hrinuna 25:22 en Hamar svaraði í þeirri næstu, 25:21. KA tók síðan þriðju hrinuna örugglega, 25:17, en Hamar svaraði aftur og vann þá fjórðu 25:20. Úrslitin réðust því í oddahrinu.

Þar var barist um hvert stig og hvorugu liðinu tókst að slíta sig frá hinu. Að lokum hafði Hamar þó betur 17:15 eftir upphækkun og tryggði sér þar með 3:2 sigur og titilinn Meistarar meistaranna í karlaflokki.

Deildakeppnin hefst síðan þann 24. september og þá fara bæði KA-liðin suður yfir heiðar og mæta Þrótti Reykjavík, sem í kvennaflokknum er reyndar með sameiginlegt lið með Blakfélagi Hafnarfjarðar.

Að endurtaka endurtekna þætti

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
12. september 2026 | kl. 09:00

Ilmbirki heima og erlendis

Sigurður Arnarson skrifar
09. september 2026 | kl. 09:00

Hvernig hefurðu það, í alvöru?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
08. september 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Knarrarberg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. september 2026 | kl. 02:00

Jól á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
06. september 2026 | kl. 06:00

Einfaldir karlmenn

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
05. september 2026 | kl. 06:00