Fara í efni
Pistlar

Akureyrarliðin töpuðu – röð botnliða óbreytt

Guðjón Ernir Hrafnkelsson og Fannar Daði Malmquist Gíslason í leik KA og Þórs á dögunum. Mynd: Ármann Hinrik.

Akureyrarliðin KA og Þór töpuðu bæði í fyrstu umferð keppninnar í neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu í dag. KA sótti FH heim þar sem gestgjafarnir unnu 3-0 og Þór sótti Val heim þar sem gestgjafarnir unnu 4-1.

Þrjú efri liðin í neðri hlutanum mættu þremur neðstu liðunum og höfðu efri liðin öll betur í dag. ÍBV er áfram í botnsætinu eftir 2-0 tap á útivelli fyrir Stjörnunni. Þar fyrir ofan er KA með 20 stig og síðan Þór með 21. Efri liðin fjarlægðust því nokkuð, FH er með 24 stig, Valur með 30 og Stjarnan 31.

Næsti leikur Akureyrarliðanna er bæjarslagurinn sjálfur sem verður spilaður í flóðljósum á KA-svæðinu laugardaginn 19. september kl. 19:30.

Valur Sæmundsson og Víðir Sigurðsson fjalla nánar hvor um sinn leik:

Að endurtaka endurtekna þætti

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
12. september 2026 | kl. 09:00

Ilmbirki heima og erlendis

Sigurður Arnarson skrifar
09. september 2026 | kl. 09:00

Hvernig hefurðu það, í alvöru?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
08. september 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Knarrarberg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. september 2026 | kl. 02:00

Jól á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
06. september 2026 | kl. 06:00

Einfaldir karlmenn

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
05. september 2026 | kl. 06:00