KA/Þór teflir fram nánast nýju liði í vetur
Miklar breytingar hafa orðið á kvennaliði KA/Þórs í handbolta frá síðasta tímabili. Alls eru 11 leikmenn sem léku með liðinu í fyrra ekki lengur í hópnum og fimm nýjar hafa komið inn. Jónatan Magnússon, þjálfari liðsins, segir undirbúningstímabilið því fyrst og fremst hafa snúist um að slípa nýjan hóp saman.
„Eins og gengur og gerist stundum þá hefur undirbúningstímabilið verið misjafnt. Við erum í raun með nýtt lið í höndunum,“ segir Jónatan. Liðið hafi spilað fimm æfingaleiki í haust og tíminn verið nýttur til að aðlaga leikmenn að breyttum aðstæðum.
Hann segir deildina í ár jafnari en oft áður. Þó sé nokkuð ljóst að ÍBV, Haukar og Valur verði líklega í baráttunni á toppnum. „Baráttan um næstu sæti verður gríðarlega hörð og jöfn að ég tel,“ segir Jonni.

Slóvakíska landsliðskonan Lenka Ratvajská, til vinstri, kom til Akureyrar frá heimalandinu og Aldís Ásta Heimisdóttir kom heim frá Svíþjóð.
Ánægður með nýja leikmenn
KA/Þór er með ungan hóp en Jónatan er ánægður með þá leikmenn sem hafa bæst við. Hann útilokar þó ekki frekari breytingar á hópnum. „Við erum mjög ánægð með þá leikmenn sem við höfum fengið inn, en eins og áður sagði þá misstum við ævintýralega margar svo það er ljóst að við erum að kíkja í kringum okkur fyrir styrkingu.“ En þrátt fyrir ungan aldur segir hann hópinn vera gríðarlega metnaðarfullan og skemmtilegan að vinna með.
KA/Þór er spáð sjötta sæti í deildinni í spá þjálfara og forráðamanna. Jónatan segist ekki vilja leggja of mikla áherslu á sætaskipanina að svo stöddu. „Við erum með algjörlega nýtt lið í höndunum þannig að það mun taka tíma að slípa hópinn saman. Hins vegar þá er alveg klárt að ég hef trú á hópnum,“ segir hann.
Markmiðið sé fyrst og fremst að skapa lið sem hafi gaman af því að spila saman og mæti verkefnum sínum af ástríðu og baráttu. „Markmiðið okkar er að liðið, hópurinn og allir í kring muni njóta þess að spila, spila með ástríðu og baráttu.“
Fyrstu leikirnir gegn toppliðum
KA/Þór hóf keppnistímabilið síðastliðinn laugardag með leik gegn ÍBV í Vestmannaeyjum, sem spáð er Íslandsmeistaratitlinum í árlegri spá þjálfara og fyrirliða. Jónatan var ánægður með frammistöðuna þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki fallið með liðinu. „Frammistaðan þar var góð, og með aðeins meiri heppni og klókindum fengið meira út úr þeim leik,“ segir hann.
Framundan eru hins vegar fleiri erfið verkefni. Haukar, sem var spáð öðru sæti á eftir ÍBV, koma næst í KA-heimilið og í öðrum heimaleiknum bíða Íslandsmeistarar Vals. Jónatan segir leikjaplanið því vera alvöru prófstein fyrir nýtt KA/Þórs-lið.
„Mig langar að nota tækifærið að biðla til Akureyringa að mæta á leiki hjá okkur og styðja stelpurnar. Við viljum spila flottan handbolta sem ég tel þess virði að mæta og sjá,“ sagði Jónatan Magnússon að lokum.
Breytingar á leikmannahópi KA/Þórs frá síðasta tímabili
Ingibjörg Hauksdóttir frá Flint Tonsberg (Noregur)
Joan Rúnadóttir frá Kyndil (Færeyjar)
Lenka Ratvajská frá HK Slovan Duslo Šala (Slóvakía)
Anna Petrovics
Anna Þyrí Halldórsdóttir - í pásu
Aþena Einvarðsdóttir - í fæðingarorlofi
Bernadett Réka Leiner í Strovolou (Kýpur)
Elsa Björg Guðmundsdóttir í Gróttu
Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir - í pásu
Rakel Sara Elvarsdóttir - slitið krossband
Susanne Pettersen í Handball Leno (Ítalía)
Tinna Valgerður Gísladóttir - í fæðingarorlofi
Trude Blestrud Håkonsen í Stjörnuna
Unnur Ómarsdóttir - hætt
Ilmbirki heima og erlendis
Hvernig hefurðu það, í alvöru?
Hús dagsins: Knarrarberg
Jól á Borgum