Körfubolti: Þór sækir Selfyssinga heim í dag
Kvennalið Þórs í körfuknattleik sækir Selfyssinga heim í dag í 1. deildinni, næst efstu deild Íslandsmótsins.
Aþena er í toppsæti 1. deildarinnar með 16 sigra og eitt tap, og hefur liðið þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili. Þór er í 2. sæti deildarinnar, hefur unnið 13 leiki og tapað tveimur, á þrjá leiki eftir. Jafnvel þótt Aþena myndi tapa sínum síðasta leik og Þór ynni alla sína myndi það ekki duga því ef liðin enda jöfn er Aþena með betri árangur í innbyrðis viðureignum liðanna. Fjölnir er í 3. sætinu með 13 sigra og þrjú töp. Selfyssingar eru í 4. sæti deildarinnar, hafa unnið tíu leiki og tapað sex.
Þór vann fyrri leik liðanna á Akureyri í desember með 48 stiga mun, 99-51.
- 1. deild kvenna í körfubolta
Vallaskóli á Selfossi kl. 19:15
Selfoss - Þór - Útsending: SÝN KKÍ TV3
Áskriftarsjónvarp
Liðin í 2.-4. sæti fyrstu deildar fara í umspil eða úrslitakeppni um laust sæti í efstu deild, Bónusdeildinni, á næsta tímabili ásamt liðinu í næstneðsta sæti Bónusdeildarinnar. Nú þegar er ljóst að Þór og Fjölnir munu mætast í annarri undanúrslitaviðureigninni og líklegt að Hamar/Þór og Selfoss mætist í hinni, en ÍR á þó möguleika að ná 4. sætinu af Selfossi og komast í umspilið.
Tré ölrakóngsins – Fyrri hluti
Nafnalágin
Að lesa um afa
Birna berst líka við kerfið