Fara í efni
Pistlar

Handboltaveislan í Höllinni – MYNDIR

Mynd: Ármann Hinrik

Þór og KA gerðu jafntefli, 31:31, í lokaumferð efstu deildar karla í handbolta, Olísdeildarinnar, í Íþróttahöllinni á fimmtudagskvöldið, að viðstöddum um 1300 áhorfendum. Segja má að þessi fallega kvöldstund hafi verið einskonar bæjarhátíð; stemningin var frábær, hvor hópur studdi sína menn dyggilega, hart var tekist á innan vallar eins og vera ber en eftir að flautað var til leiksloka urðu allir vinir á ný.

Fulltrúar akureyri.net voru vitaskuld á staðnum og í dag birtist glæsileg myndaveisla, sem Ármann Hinrik á mestan heiður af.

„Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið og hafði upp á allt að bjóða sem prýðir alvöru grannaslag – stappfullt hús háværra áhorfenda, markvörslur á báða bóga, mistök af öllu tagi, hörkubaráttu, pústra, rautt spjald... og háspennu allan tímann,“ skrifaði Valur Sæmundsson í umfjöllun akureyri.net á fimmtudagskvöldið. „Svo fór að lokum að leikurinn endaði með jafntefli, 31:31, sem gagnaðist hvorugu liðinu í baráttunni um betri stað í stöðutöflunni.“

  • Umfjöllun akureyri.net á fimmtudagskvöldið:

Dramataískt jafntefli en allir vonsviknir heim

Nafnalágin

Jóhann Árelíuz skrifar
15. mars 2026 | kl. 06:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Birna berst líka við kerfið

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
13. mars 2026 | kl. 13:00

Gróður á lóðarmörkum

Sigurður Arnarson skrifar
11. mars 2026 | kl. 10:30

Drepfyndin óvissuferð hjá Leikfélagi Hörgdæla

Rakel Hinriksdóttir skrifar
10. mars 2026 | kl. 11:00

Flækjum ekki hlutina

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
10. mars 2026 | kl. 06:00