KA-menn í Eyjum í dag – Dikhaminjia úr leik
Úrslitakeppnin í Olísdeild karla í handbolta hefst í dag með tveimur leikjum, annars vegar mætast ÍBV og KA í Vestmanneyjum, hins vegar Valur og HK að Hlíðarenda.
Lykilmenn KA hafa verið frá vegna meiðsla undanfarið, stórskyttan Bjarni Ófeigur Valdimarsson vegna meiðsla á fingri, Norðmaðurinn Morten Linder fór úr axlarlið og fyrirliðinn og varnarjaxlinn Daði Jónsson sleit hásin á æfingu daginn fyrir leikinn við Þór í lokaumferð deildarkeppninnar. Nú er enn einn úr leik; örvhenti hornamaðurinn, Giorgi Dikhaminjia.
Giorgi, næst markahæstur leikmaður KA í vetur á eftir Bjarna Ófeigi, meiddist í landsleik með Georgíu í síðustu viku gegn Ísrael í undankeppni heimsmeistaramótsins. Þetta kom fram á handboltavefnum Handkastinu, þar sem haft er eftir Andra Snæ Stefánssyni þjálfara KA að það væri nokkuð ljóst að tímabilinu væri lokið hjá Georgíumanninum.
- Olísdeild karla í handbolta
Átta liða úrslit, leikur 1
Íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum kl. 18
ÍBV - KA - Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
Áskriftarsjónvarp
Leikir þessara liða í deildinni í vetur enduðu með eins og tveggja marka sigri. ÍBV vann 36-34 í Eyjum í október og KA vann 29-28 á Akureyri í febrúar.
Tveir seinni leikirnir í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eru á dagskrá á morgun: Haukar - Afturelding og FH - Fram.
Bjarni Ófeigur bestur og Giorgi í úrvalsliðinu
- Markvörður: Björgvin Páll Gústavsson, Val
- Vinstri hornamaður: Giorgi Dikhaminjia, KA
- Skytta hægra megin: Arnór Snær Óskarsson, Val
- Leikstjórnandi: Freyr Aronsson, Haukum
- Skytta vinstra megin: Bjarni Ófeigur Valdimarsson, KA
- Hægri hornamaður: Hannes Höskuldsson, Selfossi
- Línumaður: Sigurður Jefferson, HK
- Þjálfari ársins: Sigursteinn Arndal, FH
- Besti varnarmaðurinn: Ingvar Dagur Gunnarsson, FH

KA-menn fagna sigri á Vestmannaeyingum á heimavelli í síðasta mánuði. Liðin mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Eyjum í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson.
Gildi – þinn innri áttaviti
Hús dagsins: Aðalstræti 54 og 54a
Skammtað í aska
Haldið á brattann