Fara í efni
Pistlar

Handbolti: Langþráður heimaleikur Þórsara

Stuðningsmenn handboltaliðs Þórs hafa aðeins fengið einn heimaleik enn sem komið er á tímabilinu, en þeim til huggunar þó tvo leiki á Akureyri. Myndin er úr útileik liðsins gegn KA. Mynd: Ármann Hinrik.

Sjöunda umferð efstu deildar karla í handknattleik, Olísdeildinni, hófst í gær og verður fram haldið í kvöld og næstu kvöld. Fyrri Akureyrarleikurinn er í kvöld þegar Þór tekur á móti Stjörnunni.

Þórsarar töpuðu fyrir ÍBV í Eyjum í síðustu umferð með sex marka mun, 37-31, síðastliðið föstudagskvöld. Sama kvöld vann Stjarnan heimaleik gegn KA, 35-33. Fyrir umferðina hafði Stjarnan aðeins unnið einn leik, en færðist upp í 7. sætið með sigrinum, situr þar með fimm stig úr fyrstu sex leikjunum. Þórsarar hafa unnið tvo leiki af fyrstu sex og eru í 9. sætinu með fjögur stig, jafnmörg stig og Fram sem er sætinu ofar og HK sem er sætinu neðar.

Eftir fjóra útileiki í röð í deildinni og einn í bikarkeppninni er loks komið að heimaleik hjá Þórsliðinu.

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 7. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19
    Þór - Stjarnan

Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
20. október 2026 | kl. 12:00

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00

Að vera góður (með sig)

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
17. október 2026 | kl. 11:00

Samanburður broddhlyns og garðahlyns

Sigurður Arnarson skrifar
14. október 2026 | kl. 10:45

Lífið í búningsklefanum

Pétur Guðjónsson skrifar
12. október 2026 | kl. 13:30

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00