Fara í efni
Pistlar

Þór með stigi meira en KA fyrir lokaumferðina

Þórsarar fagna fyrsta marki sínu í dag; Ásbjörn Líndal Arnarsson, lengst til vinstri, skoraði þá með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu. Mynd: Ármann Hinrik

Það kemur ekki í ljós fyrr en í lokaumferð Bestu deildarinnar í fótbolta um næstu helgi hvort Akureyrarliðanna leikur áfram í deildinni næsta sumar og hvort verður að gera sér fall niður í næst efstu deild að góðu.

Þór vann Stjörnuna 3:1 á heimavelli í dag en KA tapaði 4:1 fyrir Val í Reykjavík. Með sigrinum komst Þór upp fyrir KA; Þór hefur nú 27 stig í þriðja neðsta sæti en KA er með 26 stig í efra fallsætinu. ÍBV er neðst og þegar fallið.

Stjarnan gerði fyrsta markið á VÍS-velli Þórs í dag en yngstu Þórsararnir sáu síðan um mörk liðsins. Ásbjörn Líndal Arnarsson jafnaði með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu og Sverrir Páll Ingason kom Þór yfir með frábæru skoti hægra megin úr vítateignum. Staðan var 2:1 í hálfleik og það var svo Þorri Ingólfsson sem gerði þriðja markið eftir snögga sókn og sendingu Einars Freys Halldórssonar. Ásbjörn, Einar Freyr og Sverrir Páll eru jafnaldrar, tveir þeir fyrrnefndu orðnir 18 ára en Sverrir fagnar þeim áfanga síðar á árinu. Þorri er ári yngri, varð 17 ára í sumar.

Valur gerði fyrsta markið að Hlíðarenda en Adam Ægir Pálsson jafnaði með góðu skoti úr miðjum vítateignum eftir sendingu Mikaels Breka Þórðarsonar. Staðan var 1:1 í hálfleik. 

Í lokaumferðinni, næsta leikur, leikur Þór við FH í Hafnarfirði en KA tekur á móti ÍBV.

Nánar um leikina seinna í dag

Að vera góður (með sig)

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
17. október 2026 | kl. 11:00

Samanburður broddhlyns og garðahlyns

Sigurður Arnarson skrifar
14. október 2026 | kl. 10:45

Lífið í búningsklefanum

Pétur Guðjónsson skrifar
12. október 2026 | kl. 13:30

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00

Þegar vinnan er farin í hundana

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Norðurgata 26

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. október 2026 | kl. 10:45