Fara í efni
Pistlar

Blak og körfubolti heima – pílukast í Reykjavík

Tveir leikir eru á dagskránni á Akureyri í dag, seinni blakleikur KA-kvenna gegn HK/Ými og leikur Þórs og KV í 1. deild kvenna í körfubolta. Keppendur frá píludeild Þórs halda áfram á seinni degi Íslandsmóts félagsliða í Reykjavík í dag.

  • Blak: KA vann öruggan 3-0 sigur á HK/Ými í fyrri viðureign liðanna í gær. Seinni leikurinn er á dagskrá í KA-heimilinu í dag. Hér er ekki um Íslandsmeistarana að ræða heldur lið númer tvö úr Kópavoginum. 
  • Pílukast: Íslandsmót félagsliða í pílukasti fer fram í Reykjavík um helgina. Keppt var í einmenningi og tvímenningi í gær, en í dag er komið að liðakeppni. 
  • Körfubolti: Kvennalið Þórs í körfubolta vann stórsigur á Skallagrími á útivelli í annarri umferð 1. deildar, eftir naumt tap fyrir Þorlákshafnarþór í fyrstu umferðinni. Í dag er komið að heimaleik hjá Þór, sem tekur á móti KV.

Seinni blakleikur helgarinnar á dagskrá í KA-heimilinu á sunnudag.

  • Blak
    Unbroken-deild kvenna
    KA-heimilið kl. 14
    KA - HK/Ýmir

Kvennalið Þórs í körfubolta tekur á móti Vesturbæingunum í KV á sunnudag.

  • Körfubolti
    1. deild kvenna, 3. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 15
    Þór - KV

Þrjú lið frá píludeild Þórs, tvö karlalið og eitt kvennalið, takast á við kollega sína úr öðrum pílufélögum landsins á Íslandsmóti félagsliða sem fram í Reykjavík. Keppni hófst í gær og lýkur í dag. Keppt er í einmenningi, tvímenningi og liðakeppni. Fjórir spilarar eru í hverju liði. Alls keppa 22 karlalið og sex kvennalið í mótinu. Nánari upplýsingar um mótið má finna á vef Íslenska pílukastsambandsins - dart.is.

  • Íslandsmót félagsliða
    Bullseye, Reykjavík

Streymt er frá þremur viðureignum samtímis á YouTube-rásinni Live Darts Iceland og hægt að fylgjast með úrslitum og stöðu á vefnum dartconnect.com.

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00

Að vera góður (með sig)

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
17. október 2026 | kl. 11:00

Samanburður broddhlyns og garðahlyns

Sigurður Arnarson skrifar
14. október 2026 | kl. 10:45

Lífið í búningsklefanum

Pétur Guðjónsson skrifar
12. október 2026 | kl. 13:30

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00

Þegar vinnan er farin í hundana

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00