Fara í efni
Pistlar

Þórsarar komnir í 8-liða úrslit bikarins

Daninn Bertram Simonsen var markahæstur Þórsara í leiknum gegn ÍBV 2. Mynd: Ármann Hinrik.

Þórsarar báru sigurorð af ÍBV 2 í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í handknattleik í Eyjum í gær. Lokatölur urðu 30:27 Þór í vil, eftir að staðan hafði verið jöfn í leikhléi, 14:14.

Eyjamenn voru skrefinu á undan nánast allan fyrri hálfleik en annars var jafnt á flestum tölum. Þórsarar hófu seinni hálfleikinn hins vegar af krafti og skoruðu fimm fyrstu mörkin. Þar með var grunnurinn að sigrinum lagður og þótt heimamenn næðu að minnka muninn í eitt mark þegar langt var liðið á seinni hálfleik komust þeir ekki lengra og Þór sigldi öruggum sigri heim.

Leikurinn í gær var annar leikur Þórs í Vestmannaeyjum á tveimur dögum en á föstudaginn beið liðið lægri hlut gegn ÍBV í deildarkeppninni. Eyjamenn hafa í gegnum árin oft sent sprækt b-lið til leiks í bikarkeppninni og gjarnan náð að gera stærri liðum skráveifu. Þeir stóðu líka vel í Þórsliðinu, ekki síst vegna liðsstyrks sem þeim barst á dögunum. Agnar Smári Jónsson, sem varð Íslandsmeistari með Val í vor en lagði skóna á hilluna að því loknu, er búinn að skipta yfir í ÍBV. Hann hitaði upp með því að leika með ÍBV 2 í gær og skoraði heil 12 mörk. Næstur honum kom Garðar Benedikt Sigurjónsson með 4.

Bertram Simonsen var markahæstur Þórsara með 6 mörk og Hafþór Már Vignisson og Mikkel Bak Scheumann Jensen komu næstir með 5.

8-liða úrslitin í bikarkeppni HSÍ, Powerade-bikarnum, fara fram 18. desember og þau fjögur lið sem komast í undanúrslit leika um bikararmeistaratitilinn í byrjun apríl – bikarhelginni. Undanúrslitin fara fram föstudaginn 2. apríl og úrslitaleikurinn laugardaginn 3. apríl.

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00

Að vera góður (með sig)

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
17. október 2026 | kl. 11:00

Samanburður broddhlyns og garðahlyns

Sigurður Arnarson skrifar
14. október 2026 | kl. 10:45

Lífið í búningsklefanum

Pétur Guðjónsson skrifar
12. október 2026 | kl. 13:30

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00

Þegar vinnan er farin í hundana

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00