Bikarúrslit í blaki og ögurstund í íshokkí
Þrjú akureyrsk íþróttalið verða í eldlínunni í dag og mikið undir hjá tveimur þeirra. Kvennalið KA í blaki spilar til úrslita í Kjörísbikarkeppninni og karlalið SA í íshokkí mætir SR í þriðja leik í einvígi um Íslandsmeistaratitilinn og verður að vinna því með sigri í dag hirða Reykvíkingar titilinn. KA/Þór á útileik í handboltanum, en þar er minna í húfi en hjá hinum tveimur liðunum.
Toppliðin í blakinu mætast í bikarúrslitum
KA-konur unnu nokkuð sannfærandi sigur á liði Þróttar R/Blakfélags Hafnarfjarðar í undanúrslitum bikarkeppninnar í blaki, Kjörísbikarsins, á fimmtudagskvöld, 3-1. Fyrr um daginn hafði KA sigrað Aftureldingu 3-0.
HK tryggði sér um liðna helgi deildarmeistaratitilinn í blaki eftir tvær viðureignir við KA, en KA endaði í 2. sætinu. Bikarúrslitaleikurinn verður því á milli tveggja sterkustu blakliða landsins og verður án efa spennandi. HK er með sterkt lið, margar landsliðskonur eins og þjálfainn, Miguel Mateo, benti á í spjalli við akureyri.net eftir sigurinn í undanúrslitunum. En í bikarúrslitum getur auðvitað allt gerst.
- Kjörísbikar kvenna í blaki, úrslitaleikur
Digranes í Kópavogi kl. 13
KA - HK - Útsending: RÚV kl. 12:30
Opin dagskrá
Þessi lið mættust fjórum sinnum í Unbroken-deildinni í vetur og vann KA allar viðureignirnar. KA vann tvær viðureignir 3-0 á Akureyri í september, 3-2 á útivelli í nóvember og 3-1 á útivelli í febrúar.
KA/Þór fer í Breiðholtið
Enn er þremur umferðum ólokið í Olísdeild kvenna í handknattleik. KA/Þór hefur þegar tryggt sér sæti í fyrstu umferð úrslitakeppninnar þar sem liðin í 3.-6. sæti mætast og keppa um það hvaða lið fara áfram í undanúrslit gegn tveimur efstu liðunum.
KA/Þór á útileik í dag, sækir ÍR heim í Breiðholtið. ÍR-ingar eru í 4. sæti deildarinnar með 20 stig, en KA/Þór er í 6. sætinu með 15 stig.
Fram hefur komið í fréttum að Unnur Ómarsdóttir leikur ekki meira með liðinu þar sem hún er barnshafandi. Þá hefur hin ungverska Anna Petrovic snúið aftur til síns gamla félags í Austurríki, en hún kom til KA/Þórs fyrir tímabilið.
- Olísdeild kvenna í handknattleik, 19. umferð
Skógarsel í Breiðholti kl. 15:15
ÍR - KA/Þór - Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
Áskriftarsjónvarp
Spiluð er þreföld umferð í Olísdeild kvenna og hafa liðin því mæst tvisvar nú þegar í deildinni í vetur, í hnífjöfnum leikjum. ÍR vann með einu marki í Breiðholtinu í október, 30-29, en KA/Þór vann með tveggja marka mun á Akureyri í janúar, 23-21.
Ögurstund hjá SA Víkingum
Þriðji leikur í úrslitaeinvíginu í Toppdeild karla í íshokkí fer fram í Skautahöllinni í Reykjavík síðdegis í dag. SA Víkingar eru komnir með bakið upp að vegg, eins og stundum er sagt, eftir að SR hefur unnið tvo fyrstu leikina, fyrst 6-5 í framlengdum leik í Reykjavík og svo 5-1 á Akureyri á fimmtudagskvöldið. Í dag kemur því ekkert annað til greina en að bíta í skjaldarrendur og berjast til síðasta blóðdropa, ekkert annað en sigur gefur SA Víkingum áframhaldandi líf í úrslitakeppninni, en tap myndi þýða að Íslandsbikarinn færi aftur suður.
- Toppdeild karla í íshokkí
úrslitakeppni, leikur 3
Skautahöllin í Laugardal kl. 17:45
SR - SA - Útsending: icehockeyiceland.tv
Áskrift að rás eða stökum leikjum
Birna berst líka við kerfið
Gróður á lóðarmörkum
Drepfyndin óvissuferð hjá Leikfélagi Hörgdæla
Flækjum ekki hlutina